Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Kortlagning á starfsemi sjávarútvegs á Austfjörðum, og mögulegri nýsköpun sem gæti leynst þar

Mál 1402140 Fyrst á dagskrá 25. mars 2014, síðast 12. júní 2014. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.

Í heiti málsins: Sjávarútvegur og fiskeldi

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Hafnarstjórn, fundur 129 liður 4

    Erindi frá Íslenska sjávarklasanum dags. 20. febr. 2014 þar sem verið er að kanna áhuga fyrir kortlagningu á starfsemi sjávarútvegsins á Austfjörðum og þeirri nýsköpun sem gæti leynst þar, og þá mögulega fjármögnun á henni. Fyrir lágu skýrslur sem unnar hafa verið fyrir Faxaflóahafnir, Suðurnesin og Höfn í Hornafirði.

    Hafnarstjórn tekur vel í erindið og felur framkvæmdastjóra að afla frekari upplýsinga.

  2. Bæjarstjórn, fundur 153 liður 8.4

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 129“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Hafnarstjórn, fundur 132 liður 4

    Framhald erindis sem tekið var fyrir í hafnarstjórn 25. mars 2014. Varðar kortlagningu á starfsemi sjávarútvegs á Austfjörðum. Á fundinum var tekið jákvætt í erindið en óskað frekari upplýsinga. Nú liggja þær fyrir og frekari upplýsingar um verkefnið og ósk um þátttöku hafnarsjóðs upp á 500.000 kr. Hafnarstjórn samþykkir að styðja verkefnið um 500.000 kr. en fer fram á upplýsingar um hvort og hvernig önnur sveitarfélög á Austfjörðum koma að málinu.

  4. Bæjarstjórn, fundur 157 liður 3.4

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 132“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is