Fjárhagsáætlun 2014 - Kjarasamningar - viðauki 7
Mál 1408060 Fyrst á dagskrá 18. ágúst 2014, síðast 21. ágúst 2014. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 393 liður 6
Framlagður viðauki 7, kr. 119.498.594.- við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana, vegna metinna áhrifa kjarasamninga og annarra launabreytinga á fjárhagsáætlun ársins 2014. Bæjarráð samþykkir viðauka 7 og vísar honum til endanlegrar samþykktar í bæjarstjórn.
-
Bæjarstjórn, fundur 160 liður 2
Forseti bæjarstjórnar fylgdi viðaukanum úr hlaði en um er að ræða viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2014, vegna metinna áhrifa kjarasamninga og annarra launabreytinga. Lagt er til að gerð verði breyting á rekstrarkostnaði Fjarðabyggðar og stofnana á árinu 2014 í samræmi við vænt áhrif launakostnaðar í ljósi nýrra kjarasamninga og annarra breytinga m.a. nýju starfsmati. Áætlun ársins 2014 með samþykktum viðaukum gerði ráð fyrir að heildar launaútgjöld ársins 2014 yrðu kr. 2.222.654.992 en með ofangreindum breytingum verða áætluð launaútgjöld ársins 2014 kr. 2.342.153.586. Breytingin nemur kr. 119.498.594 og skiptist þannig að kr. 112.911.998 er vegna breytinga í rekstri aðalsjóðs, kr. 4.586.523 vegna breytinga í rekstri hafnarsjóðs, kr. 462.904 vegna breytinga í rekstri hitaveitu, kr. 633.689 vegna breytinga í rekstri fráveitu, kr. 699.423 vegna breytinga í rekstri vatnsveitu og kr. 204.057 vegna breytinga í rekstri sorpsamlags. Lagt er til að þessi útgjaldaaukning verði fjármögnuð af eigin fé aðalsjóðs og stofnana. Handbært fé aðalsjóðs mun lækka um kr. 119.498.594 og verða áætlað kr. 276.615.406 í árslok 2014.
Lesa alla bókunina (8 orð til viðbótar)
Viðauki lagður fram og samþykktur með 9 atkvæðum.
-
Bæjarstjórn, fundur 160 liður 3.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 393“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.