Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 2

12. ágúst 2014, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Hafþór Eiríksson, varamaður
  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 393 liður 13

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 2 frá 12.ágúst 2014, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 160 liður 5

    Til máls tók Elvar Jónsson.

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 2 frá 12.ágúst 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015

    Mál 1407033 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd fór yfir reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - 2018, en í þeim koma fram verklagsreglur og tímasetningar við undirbúning og úrvinnslu fjárhagsáætlunar hjá nefndum. Lagt fram til kynningar.

  2. 2. Starfsáætlun 2015 - fræðslumál

    Mál 1408014 Allur ferill málsins

    Farið var yfir starfsáætlun 2014 og ræddar áherslur í starfsáætlun 2015.

  3. 3. Yfirlit yfir stöðu fræðslumála á miðju ári 2014

    Mál 1408020 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri fór yfir stöðu fræðslumála og þau verkefni sem framundan eru. Fram kom m.a. að Hrafnhildur Una Guðjónsdóttir, leikskólastjóri í Kærabæ á Fáskrúðsfirði og Lísa Björk Bragadóttir, leikskólastjóri í Lyngholti á Reyðarfirði væru í ársleyfi skólaárið 2014-2015. Í þeirra stað hefur Ásta Eggertsdóttir verið ráðin leikskólastjóri í Kærabæ og Sigríður Harpa Gunnarsdóttir leikskólastjóri í Lyngholti. Þá hefur Elín Guðmundsdóttir verið ráðin sem aðstoðarleikskólastjóri í Lyngholt næsta skólaár meðan Sigrún Grétarsdóttir er í fæðingarorlofi. Í Nesskóla er Marías B. Kristjánsson, skólastjóri, kominn úr ársleyfi og hefur tekið við keflinu af Viðari H. Sveinssyni sem gegndi skólastjórastarfinu í fjarveru Maríasar. Fræðslunefnd óskar fyrrgreindum aðilum farsældar í starfi. Þá kom fram að leikskóladeild í leikskólanum Dalborg verður starfrækt í húsnæði Grunnskólans á Eskifirði næsta vetur og útlit fyrir að leikskóladeild í Lyngholti taki til starfa í Grunnskóla Reyðarfjarðar eftir áramót 2014-2015. Þá var farið yfir minnisblað mannvirkjastjóra um húsnæðismál Tónskóla Neskaupstaðar, sem lagt var fram á fundi ESU mánudaginn 11. ágúst, en viðgerðir standa yfir á húsnæðinu og sýnt að viðgerðum lýkur ekki áður en skólastarf hefst. Fræðslunefnd harmar að svo sé og felur fræðslustjóra að leita allra leiða svo hægt verði að hefja kennslu á réttum tíma þannig að skólastarf raskist sem minnst. Fræðslustjóri kynnti fjárhagsstöðu í fræðslumálum og fór yfir stöðuna í hverri stofnun. Heildarstaðan á málaflokknum er nokkurn veginn samkvæmt áætlun.

  4. 4. Undirbúningur að stefnumótun í fræðslu- og frístundamálum

    Mál 1408021 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd ræddi hvernig best væri staðið að stefnumótun í fræðslu- og frístundamálum. Fram kom að nefndin óskar eftir víðtæku samstarfi hagsmunaaðila við gerð stefnu- og aðgerðaráætlunar. Fræðslunefnd leggur til að skólaárið 2014-2015 verði nýtt sem best og vonast til að hægt verði að ljúka við gerð nýrrar stefnu og aðgerðaráætlunar á vormánuðum 2015.

  5. 5. Niðurstöður úr Skólavoginni

    Mál 1311034 Allur ferill málsins

    Farið var yfir niðurstöður úr Skólavoginni, m.a. námsárangur í samræmdum prófum í 4., 7. og 10. bekk frá haustinu 2013, rekstrarupplýsingar frá því í maí 2014 sem byggja á niðurstöðu ársins 2012, nemenda- og foreldrakannanir í grunnskóla frá skólaárinu 2013-2014 og foreldrakönnun leikskóla frá skólaárinu 2013-2014. Lagt fram til kynningar.