Yfirlit yfir stöðu fræðslumála á miðju ári 2014
Mál 1408020 Fyrst á dagskrá 12. ágúst 2014, síðast 21. ágúst 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Fræðslunefnd, fundur 2 liður 3
Fræðslustjóri fór yfir stöðu fræðslumála og þau verkefni sem framundan eru. Fram kom m.a. að Hrafnhildur Una Guðjónsdóttir, leikskólastjóri í Kærabæ á Fáskrúðsfirði og Lísa Björk Bragadóttir, leikskólastjóri í Lyngholti á Reyðarfirði væru í ársleyfi skólaárið 2014-2015. Í þeirra stað hefur Ásta Eggertsdóttir verið ráðin leikskólastjóri í Kærabæ og Sigríður Harpa Gunnarsdóttir leikskólastjóri í Lyngholti. Þá hefur Elín Guðmundsdóttir verið ráðin sem aðstoðarleikskólastjóri í Lyngholt næsta skólaár meðan Sigrún Grétarsdóttir er í fæðingarorlofi. Í Nesskóla er Marías B. Kristjánsson, skólastjóri, kominn úr ársleyfi og hefur tekið við keflinu af Viðari H. Sveinssyni sem gegndi skólastjórastarfinu í fjarveru Maríasar. Fræðslunefnd óskar fyrrgreindum aðilum farsældar í starfi. Þá kom fram að leikskóladeild í leikskólanum Dalborg verður starfrækt í húsnæði Grunnskólans á Eskifirði næsta vetur og útlit fyrir að leikskóladeild í Lyngholti taki til starfa í Grunnskóla Reyðarfjarðar eftir áramót 2014-2015. Þá var farið yfir minnisblað mannvirkjastjóra um húsnæðismál Tónskóla Neskaupstaðar, sem lagt var fram á fundi ESU mánudaginn 11. ágúst, en viðgerðir standa yfir á húsnæðinu og sýnt að viðgerðum lýkur ekki áður en skólastarf hefst. Fræðslunefnd harmar að svo sé og felur fræðslustjóra að leita allra leiða svo hægt verði að hefja kennslu á réttum tíma þannig að skólastarf raskist sem minnst. Fræðslustjóri kynnti fjárhagsstöðu í fræðslumálum og fór yfir stöðuna í hverri stofnun. Heildarstaðan á málaflokknum er nokkurn veginn samkvæmt áætlun.
-
Bæjarstjórn, fundur 160 liður 5.3
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 2“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.