Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Beiðni um samstarf umbætta aðstöðu við íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði

Mál 1407002 Fyrst á dagskrá 4. júlí 2014, síðast 21. ágúst 2014. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: FáskrúðsfjörðurÍþróttir og tómstundir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 390 liður 1

    Bréf áhugahóps um bætta aðstöðu við Íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði dagsett 21.júní sl. Hópurinn hyggst koma upp heitum potti við íþróttahúsið og fjármagna kaupin að fullu. Hópurinn leitar eftir framlagi Fjarðabyggðar í formi uppsetningar á girðingu, vinnu við lagnir, rafmagn o.fl. og rekstur pottsins að uppsetningu lokinni. Erindi vísað til framkvæmdasviðs með ósk um gerð kostnaðaráætlunar og að því loknu til umfjöllunar og afgreiðslu í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  2. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 97 liður 11

    Lögð fram beiðni frá Ingólfi Hafsteini Hjaltasyni, dagsett 21. júní 2014, um samstarf um bætta aðstöðu við íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði. Auk þess lagt fram minnisblað frá mannvirkjastjóra, dagsett 10. júlí 2014, um áætlaðan kostnað. Nefndin vísar erindinu til fjárhagsáætlanagerðar fyrir árið 2015. Einnig er erindinu vísað til íþrótta- og tómstundanefndar til umsagnar.

  3. Bæjarstjórn, fundur 160 liður 9.1

    Fundargerðin „Bæjarráð - 390“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is