16.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um styrkingu leikskóla og fæðingarorlofs
Mál 1509193 Fyrst á dagskrá 1. október 2015, síðast 15. október 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðslaStyrkir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 445 liður 8
Fram lögð til kynningar þingsályktunartillsgs um skipan starfshóps sem geri tillögur um hvernig staðið skuli að lengingu fæðingarorlofs í 18 mánuði og fjármögnun þessa að byggja upp leikskóla sína
þannig að þeir geti tekið við öllum ársgömlum börnum í gjaldfrjálsan leikskóla ásamt nauðsynlegum lagabreytingum til að styrkja stöðu leikskólanna sem fyrsta skólastigsins í menntakerfi landsins.
-
Fræðslunefnd, fundur 21 liður 1
Fram er lögð til kynningar og umsagnar þingsályktunartillaga um skipan starfshóps sem geri tillögur um a) hvernig staðið skuli að lengingu fæðingarorlofs í 18 mánuði og fjármögnun verkefnisins, b)afmörkun þess tímaskeiðs sem sveitarfélög hafi til að byggja upp leikskóla sína þannig að þeir geti tekið við öllum 12 mánaða börnum í gjaldfrjálsan leikskóla og hvernig það verkefni verði fjármagnað og c) nauðsynlegar lagabreytingum til að styrkja stöðu leikskólanna sem fyrsta skólastigsins í menntakerfi landsins. Fræðslunefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
-
Bæjarstjórn, fundur 187 liður 1.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 445“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 187 liður 7.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 21“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.