Bæjarráð, fundur 445
1. október 2015, kl. 12:00 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 187 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason.
Fundargerð bæjarráðs frá 1. október s.l. stafðest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í fræðslumálum
Mál 1508025 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri ásamt fræðslustjóra og formanni fræðslunefndar.
Farið yfir með fræðslustjóra og formanni áherslur í fjárhagsáætlunargerð og gjaldskrár fyrir árið 2016.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í íþrótta- og tómstundamálum
Mál 1508076 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri ásamt fræðslustjóra og formanni íþrótta- og tómstundanefndar sem var í símasambandi við fundinn.
Farið yfir með fræðslustjóra og formanni áherslur í fjárhagsáætlunargerð og gjaldskrár fyrir árið 2016.
-
3. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2016 - menningar- og safnanefnd
Mál 1509023 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri ásamt forstöðumanni menningar- og safnamála. Formaður menningar- og safnanefndar boðaði óvænt forföll.
Farið yfir með forstöðumanni og formanni áherslur í fjárhagsáætlunargerð og gjaldskrár fyrir árið 2016.
-
4. Aðalfundur Landsbyggðarinnar lifi 2015 - 10.október
Mál 1509176 Allur ferill málsins
Framlagt aðalfundarboð Landsbyggðin lifi laugardaginn 10. október n.k. kl 13:30 á Kópaskeri.
Lagt fram til kynningar. Vísað til verkefnastjóra atvinnumála.
-
5. Aðalfundur HAUST 2015 - 28.október
Mál 1509175 Allur ferill málsins
Fram lagt aðalfundarboð Heilbrigðiseftirlits Asturlands en aðalfundur er boðaður 28. október n.k. að Hoffelli á Hornafirði.
Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarssyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum ásamt bæjarstjóra.
-
6. 735 Ofanflóðvarnir í Hlíðarendaá
Mál 1406056 Allur ferill málsins
Fram lagður verksamningur um ofanflóðavarnir á Eskifirði í Hlíðarendaá, uppsetning varnarmannvirkja.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti. Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn.
-
7. Kjördæmavika þingmanna Norðausturkjördæmis dagana 28.september - 2.október 2015
Mál 1509192 Allur ferill málsins
Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri sátu fyrr í dag fund með þingmönnum kjördæmisins þar sem farið var yfir áherslumál Austurlands og sveitarfélagsins.
-
8. 16.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um styrkingu leikskóla og fæðingarorlofs
Mál 1509193 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar þingsályktunartillsgs um skipan starfshóps sem geri tillögur um hvernig staðið skuli að lengingu fæðingarorlofs í 18 mánuði og fjármögnun þessa að byggja upp leikskóla sína
þannig að þeir geti tekið við öllum ársgömlum börnum í gjaldfrjálsan leikskóla ásamt nauðsynlegum lagabreytingum til að styrkja stöðu leikskólanna sem fyrsta skólastigsins í menntakerfi landsins.
-
9. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2015
Mál 1502135 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar 22. fundargerð stjórnar samtaka sjávarútvegsfyrirtækja frá 21.9.2015
-
10. Íþrótta- og tómstundanefnd - 14
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 22. september s.l. lögð fram til kynningar.