Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í íþrótta- og tómstundamálum
Mál 1508076 Fyrst á dagskrá 1. október 2015, síðast 19. nóvember 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrárÍþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 445 liður 2
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri ásamt fræðslustjóra og formanni íþrótta- og tómstundanefndar sem var í símasambandi við fundinn.
Farið yfir með fræðslustjóra og formanni áherslur í fjárhagsáætlunargerð og gjaldskrár fyrir árið 2016.
-
Bæjarstjórn, fundur 187 liður 1.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 445“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 452 liður 4
Þennan lið dagskrár sátu fjármálastjóri og fræðslustjóri.
Bréf bæjarstjóra til fastanefnda þar sem óskað var eftir tillögum að hagræðingarleiðum. Í bréfi til íþrótta- og tómstundanefndar er óskað eftir að nefndin vinni að frekari hagræðingu og kanni m.a. opnunartíma íþróttamannvirkja. Íþrótta- og tómstundanefnd ásamt íþrótta- og tómstundafulltrúa og fræðslustjóra hefur farið yfir stöðu málaflokksins og skoðaði leiðir til að ná fram settu markmiði. Íþrótta- og tómstundanefnd fól íþrótta- og tómstundafulltrúa að gera breytingar á starfsáætlunum í takt við niðurstöðu nefndarinnar um frekari hagræðingu og breytingu á gjaldskrá. Bæjarrráð samþykkir tillögur íþrótta- og tómstundanefndar en þær miða að því að sundlaugum verði lokað frá kl. 18:00 á föstudögum og á rauðum dögum, utan helgidaga í kringum páska, verður sundlaugunum lokað til skiptis.
-
Bæjarstjórn, fundur 190 liður 2.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 452“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.