Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 446

5. október 2015, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 187 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 5. október s.l. stafðest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2016 - bæjarráð

    Mál 1509025 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Farið yfir fjárhagsáætlun 2016 fyrir atvinnumál.

  2. 2. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2016 ásamt gjaldskrá og langtímaáætlun

    Mál 1508040 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri ásamt framkvæmdastjóra hafna og formanni hafnarstjórnar.

    Farið yfir með framkvæmdastjóra og formanni áherslur í fjárhagsáætlunargerð og gjaldskrár fyrir árið 2016.

  3. 3. Fjármál 2015

    Mál 1501010 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Farið yfir rekstrarmál sveitarfélagsins.

  4. 4. Skíðasvæðið í Oddsskarði - útvistun rekstrar

    Mál 1507029 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlagður samningur við Ómar Skarphéðinsson um leigu-og þjónustusamning um Skíðasvæðið í Oddskarði í samræmi við samningskaupalýsingu og útboð frá 10.7. 2015.

    Bæjarráð staðfestir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

  5. 5. Stefna Fjarðabyggðar í efnahags- og atvinnumálum

    Mál 1410164 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat verkefnastjóri atvinnumála og fjármálastjóri.

    Framlagt minnisblað um stefnuþætti í efnahags-, atvinnu- og þróunarmálum í Fjarðabyggð ásamt drögum að stefnu fyrir þessa málaflokka.

    Bæjarráð samþykkir þau drög sem liggja fyrir að stefnu í efnahags-, atvinnu- og þróunarmálum og felur verkefnastjóra atvinnumála að senda hana út til umsagnar til bæjarfulltrúa. Stefnan verður tekin fyrir að nýju í bæjarráði þegar athugasemdir hafa borist.

  6. 6. Verknámsvika 2016

    Mál 1510006 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Lögð fram drög að samstarfssamningi milli Verkmenntaskóla Austurlands og Fjarðabyggðar um verknámsvikuna 2016.

    Bæjarráð samþykkir samninginn, felur bæjarstjóra undirritun hans og vísar honum til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar.

  7. 7. Beiðni um afnot af íþróttahúsinu í Neskaupstað

    Mál 1510015 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlögð beiðni frá skólastjóra Verkmenntaskóla Austurlands þar sem óskað er afnota af íþróttahúsinu í Neskaupstað laugardaginn 10. október vegna tækniviku fjölskyldunnar.

    Bæjarráð samþykkir beiðnina fyrir sitt leyti og vísar erindi til forstöðumanns íþróttamannvirkisins. Kostnaður tekinn af liðnum óráðstafað 21690.

  8. 8. Uppsögn í starf

    Mál 1510018 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur bréf frá Árna Helgasyni framkvæmdastjóra Hulduhliðar á Eskifirði en hann líkur störfum

    Um n.k. áramót vegna aldurs.

    Bæjarráð þakkar Árna fyrir vel unnin störf í þágu hjúkrunarheimilisins.

    Vísað til félagsmálanefndar.

    Bæjarráð vísar því einnig til félagsmálanefndar að fenginn verði utanaðkomandi ráðgjöf til að skoða

    og fara yfir hvort samlegð sé í rekstri hjúkrunarheimilinna í Fjarðabyggð. Einnig verði það skoðað hvort möguleikar séu á samvinnu milli hjúkrunarheimilanna og Heilbrigðsstofunar Austurlands.

    Verkefnið verði unnið í október.