Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 448

19. október 2015, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Steinþór Pétursson, ritari

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 188 liður 1

    Fundargerð bæjarráðs tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 19. október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1506139 Allur ferill málsins

    Þennan lið sat fjármálastjóri. Lögð fram gögn fyrir fyrstu drög af fjárhagsáætlun 2016 til kynningar. Bæjarráð ræddi drögin vísaði þeim til frekari vinnu.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - fasteignagjaldaálagning

    Mál 1510113 Allur ferill málsins

    þennan lið sat fjármálastjóri. Bæjarráð ræddi forsendur álagningu fasteingagjalda fyrir árið 2016. Vísað til frekari vinnslu bæjarstjóra og fjármálastóra.

  3. 3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - útsvarsálagning

    Mál 1510112 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Bæjarráð ræddi útsvarsálagningu 2016 . Vísað til frekari vinnslu bæjarstjóra og fjármálastjóra.

  4. 4. Gjaldskrár í fræðslumálum 2016

    Mál 1510013 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá fyrir tónlistarskóla Fjarðabyggðar og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

    Bæjarráð vísar gjaldskrá vegna leikskóla til frekari vinnslu og næsta fundar bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá fyrir skólamat í grunnskólum Fjarðabyggðar og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá fyrir skóladagheimili í Fjarðabyggð og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá fyrir Grunnskóla Fjarðabyggðar og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

  5. 5. Gjaldskrá bókasafna 2016

    Mál 1509190 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Fram lögð drög að gjaldskrá bókasafna í Fjarðabyggð á árinu 2016. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá fyrir bókasöfnin í Fjarðabyggð og tekur hún gildi 1. janúar 2016

  6. 6. Gjaldskrá safna 2016

    Mál 1510140 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Fram lögð drög að gjaldskrá safna í Fjarðabyggð á árinu 2016. Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjóra og tekur hana fyrir að nýju á næsta fundi bæjarráðs.

  7. 7. Gjaldskrár í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1510117 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Fram lögð drög að gjaldskrá íþróttamannvirkja í Fjarðabyggð á árinu 2016. Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjóra og tekur hana fyrir að nýju á næsta fundi bæjarráðs.

  8. 8. Gjaldskrá hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1510048 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Fram lögð drög að gjaldskrá hafnarsjóðs Fjarðabyggðar á árinu 2016. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá fyrir hafnarsjóð Fjarðabyggðar með áorðnum breytingum og tekur hún gildi 1. janúar 2016

  9. 9. Útboð vátrygginga 2015

    Mál 1510016 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Framlögð til kynningar drög að þarfalýsingu ásamt minnisblaði fyrir útboð á vátryggingum sveitarfélagsins merkt trúnaðarmál. Bæjarráð ræddi þarfagreiningua og felur fjármálastjóra að að hrinda tryggingapakkanum í útboð.

  10. 10. Fjárhagsáætlun, viðaukar vð fjárhagsáætlun og samanburður við niðurstöðu ársreiknings 2014

    Mál 1510098 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Framlagt bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga varðandi fjárhagsáætlun ársins 2014, viðauka við hana og samanburður við niðurstöður ársreiknings. Óskað nefndin eftir nánari upplýsingum frá sveitarfélaginu vegna samanburðar á áætlun og niðurstöðu ársins 2014, frávikum í rekstrarkostnaði og ástæðum þeirra. Vísað til fjármálastjóra að svara bréfinu.

  11. 11. Erindi íbúðalánasjóðs til sveitarstjórnar

    Mál 1510071 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Framlagt bréf Íbúðalánasjóðs til Fjarðabyggðar þar sem sjóðurinn býður sveitarfélaginu til viðræðna um að kaupa eignirnar af sjóðnum en sjóðurinn á 173 eignir í Fjarðabyggð. Bæjarráð mun hitta forstjóra íbúalánasjóðs þegar hann kemur til Fjarðabyggðar og mun ræða málefni sjóðsins við hann.

  12. 12. 750-ófrágengnir sökklar við Skólaveg 98-112 og Hlíðargötu 68-80

    Mál 1201257 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Lagt fram minnisblað frá mannvirkjastjóra, dagsett 14. október 2015, varðandi sölu á ófrágengnum sökklum að Skólaveg 98 til 112 á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð samþykkir að selja til Fylkis ehf grunnana og felur bæjarstjóra undirritun kaupsamnings þar um.

  13. 13. Málefni flóttamanna

    Mál 1508097 Allur ferill málsins

    Fram lagður tölvupóstur frá velferðarráðuneytinu vegna málefni flóttamanna. Boðaður er fundur 23. október n.k. með fulltrúum sveitarfélaga sem sýnt hafa málefninu áhuga þar sem þeim verður kynnt nánar hvað felst í móttöku flóttafólks. Í ljósi þess að stjórnvöld fyrirhuga að bjóða fleira flóttafólki að setjast að á Íslandi á næsta ári verður farið nánar yfir áætlanir um mótttöku flóttamanna næstu ár. Bæjarráð samþykkir að félagsmálastjóri sæki fundinn og vísar málinu til hennar.

  14. 14. Ósk um að aðstöðuhús hestamannafélagsins Blæs verði aðstöðuhús í Oddsskarði

    Mál 1510137 Allur ferill málsins

    Fram lagt minnisblað um nýtingu á aðstöðuhúsi hestamannafélagsins Blæs. Gerð er tillaga um að húsið verði nýtt sem aðstöðuhús á skíðasvæðinu í Oddsskarði. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leiti nýtingu hússins og felur bæjarstjóra að fara yfir málið og vísar málin jafnframt til eigna- skipulag og umhverfisnefndar.

  15. 15. 225.mál til umsagnar frumvarp til laga um breyt. á skipulagslögum (grenndarkynning)

    Mál 1510136 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar frumvarp til laga um breytingar á skipulagslögum. Í frumvarpinu er lögð til breyting á 1. málsl. 5. mgr. 13. gr. og 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fjalla um grenndarkynningu vegna leyfisumsókna þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag og þegar um óverulega breytingu á deiliskipulagi er að ræða. Vísað til eigna- skipulags og umhverfisnefndar.

  16. 16. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015

    Mál 1501273 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 58 frá 8. október 2016 lögð fram til kynningar.