Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - útsvarsálagning

Mál 1510112 Fyrst á dagskrá 19. október 2015, síðast 19. nóvember 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 448 liður 3

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Bæjarráð ræddi útsvarsálagningu 2016 . Vísað til frekari vinnslu bæjarstjóra og fjármálastjóra.

  2. Bæjarstjórn, fundur 190 liður 12

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu að álagningarhlutfalli útsvars úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars verði hámarksútsvar, þ.e. 14,48% af útsvarsstofni, að viðbættri hækkun sem kveðið verður á um í lögum um tekjustofna sveitarfélaga á grundveli fyrirhugaðs samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um endurmat á yfirfærslu þjónusta við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga. Gengið er út frá að lagabreyting þessa efnis verði afgreidd fyrir lok haustþings.

    Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 8 atkvæðum.