Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 449

26. október 2015, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Kristín Gestsdóttir, varamaður
  • Elvar Jónsson, varamaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Steinþór Pétursson, ritari

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 188 liður 2

    Fundargerð bæjarráðs tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 26. október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Aðalfundur HAUST 2015 - 28.október

    Mál 1509175 Allur ferill málsins

    Fundarboð á aðalfund Heilbrigðiseftirlits Austurlands þann 28. október 2015 kl. 14:00 á Hornafirði. Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar mun sitja fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  2. 2. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2015

    Mál 1510143 Allur ferill málsins

    Boð á aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands sem verður haldinn 6. nóvember 2015 kl. 13:00 á Borgarfirði. Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri mun sitja fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar. Gögn vegna fundarins liggja fyrir. Málinu vísað til umræðu í fræðslunefnd.

  3. 3. Gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1510126 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Vísað frá ESU.

    Lögð fram tillaga mannvirkjastjóra um gjaldskrá fyrir byggingarleyfis- og þjónustugjöld Fjarðabyggðar 2016.

    Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tillögu mannvirkjastjóra og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur gjaldskráin gildi 1. janúar 2016.

  4. 4. Gjaldskrá ferðaþjónusta 2016

    Mál 1510150 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Félagsmálanefnd fjallaði á fundi sínum þann 19. október sl. um gjaldskrá vegna ferðaþjónustu. Nefndin vísar gjaldskrá til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

  5. 5. Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu 2016

    Mál 1510116 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Félagsmálanefnd vísar tillögu að gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu árið 2016 til umfjöllunar í bæjarráði.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

  6. 6. Gjaldskrá framkvæmdaleyfis- og þjónustugjalda Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1510127 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Vísað frá ESU

    Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá þjónustugjalda í Fjarðabyggð og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

  7. 7. Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1510125 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Vísað frá ESU.

    Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá fyrir fráveitur í Fjarðabyggð og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

  8. 8. Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 2016

    Mál 1510130 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Vísað frá ESU.

    Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

  9. 9. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð 2016

    Mál 1510128 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Vísað frá ESU.

    Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

  10. 10. Gjaldskrá gatnagerðargjalda í Fjarðabyggð 2016

    Mál 1510129 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Vísað frá ESU.

    Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggðar og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð frestar samþykkt tillögunar og vísar henni til bæjarstjóra.

  11. 11. Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1510132 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Vísað frá ESU.

    Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá fyrir hitaveitur Fjarðabyggðar og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

  12. 12. Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1510134 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Vísað frá ESU.

    Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

  13. 13. Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1510133 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Vísað frá ESU.

    Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

  14. 14. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2016

    Mál 1510141 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Félagsmálanefnd vísar tillögu að gjaldskrá þjónustuíbúða í Fjarðabyggð árið 2016 til umfjöllunar í bæjarráði.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016. Bæjarráð vísar til bæjarstjóra að kynna tillöguna vel.

  15. 15. Gjaldskrár í fræðslumálum 2016

    Mál 1510013 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Umfjöllun um gjaldskrá vegna leikskóla í Fjarðabyggð var frestað á fundi bæjarráðs þann 12. október 2015 og vísað til næsta fundar.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016, en vísar til umfjöllunar á milli umræðna um fjárhagsáætlun vangaveltum um útfærslu gjalds vegna aukinnar opnunar leikskóla.

  16. 16. Gjaldskrár í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1510117 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Umfjöllun um gjaldskrá íþróttamannvirkja í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og tekur hún gildi 1. janúar 2016.

  17. 17. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1506139 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Fjallað um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016. Áætlunin rædd og var bæjarstjóra falið að leggja tillögur fyrir nefndir til umfjöllunar milli umræðan í bæjarstjórn. Bæjarráð vísar áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  18. 18. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017 - 2019

    Mál 1506140 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. Fjallað um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017 til 2019. Bæjarráð vísar áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  19. 19. Erindi frá Salthússmarkaði Stöðvarfjarðar

    Mál 1510142 Allur ferill málsins

    Bréf frá stjórn Salthúsmarkaðarins á Stöðvarfirði dags. 17. október 2015 þar sem þakkað er fyrir afnot af Samkomuhúsinu á Stöðvarfirði á liðnu sumri og óskað eftir heimild til að nýta það áfram til rekstrar handverksmarkaðar frá 1. júni til loka september sumarið 2016. Bæjarráð samþykkir að veita þeim aðgang að samkomuhúsinu 2016 og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við hlutaðeigandi.

  20. 20. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016

    Mál 1509051 Allur ferill málsins

    Bréf frá Atvinnu og nýsköpunarráðuneytinu dags. 20. október þar sem sveitarfélgainu er tilkynnt um úthlutun ráðuneytisins á byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2015/2016 og sveitarfélaginu er gefinn kostur á að koma með tillögu að sérákvæðum um úthlutun kvótans. Fyriri fundinum láu drög að sérstökum reglum um úthlutun byggðakvótans. Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leiti og vísar þeim til bæjarstjornar.

  21. 21. Fjarðabyggð til framtíðar. Trúnaðarmál.

    Mál 1411075 Allur ferill málsins

    Afgreiðsla bæjarráðs færð í trúnaðarmálabók.

  22. 22. Aðalfundur SSA 2015

    Mál 1503140 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Samanbands sveitarfélaga á Austurlandi lögð fram til kynningar.

  23. 23. Drög að nýrri reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga til umsagnar

    Mál 1510145 Allur ferill málsins

    Erindi frá Innanríkisráðuneytinu dags. 16. október 2015 þar sem kynnt er að reikningsskila- og upplýsinganefnd hefur unnið drög að endurskoðaðri reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Reglugerðardrögin eru nú til kynningar og er unnt að senda ráðuneytinu umsagnir til og með 30. október. Málinu vísað til fjármálastjóra til skoðunar.

  24. 24. Ný staðsetning Blæs - húss

    Mál 1506129 Allur ferill málsins

    Vísað frá ESU

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu umhverfisstjóra um staðsetningu hússins við skíðaskálann í Oddskarði og vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir tillöguna og kostnaðurinn skv. minnisblaði færður af liðnum óráðstafað allt að 2,5 millj.kr.

  25. 25. Tilnefningar í samgöngunefnd SSA

    Mál 1510175 Allur ferill málsins

    Með erindi dags. 22. október óskar SSA eftir tilnefningum sveitarfélaga um aðalmann og varamann í samgöngunefnd Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

    Tillögu skal senda SSA fyrir 1. nóvember nk. Bæjarráð samþykkir að Einar Már Sigurðarson verði aðalmaður og Pálina Margeirsdóttir verði varamaður.

  26. 26. Umræðu- og upplýsingafundur um stöðuna í yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks

    Mál 1510174 Allur ferill málsins

    Samband Ísl. sveitargfélaga boðar til umræðu og upplýsingafundar um yfirfærslu málefna fatlaðs fólks í Reykajvík þann 11. nóvember nk. Málinu vísað til bæjarstjóra og umfjölllunar í félagsmálanefnd.

  27. 27. Stefna Fjarðabyggðar í efnahags- og atvinnumálum

    Mál 1410164 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög Fjarðabyggðar að stefnu í efnahags og atvinnumálum. Drögin hafa áður verið kynnt í bæjarráði og send bæjarfulltrúum til kynningar og engar athugasemdir bárust. Bæjarráð samþykkir drögin fyrir sitt leiti og vísar þeim til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

  28. 28. Fundargerðir félagsmálanefndar 2015

    Mál 1501132 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 76 frá 19.október lögð fram til kynningar.

  29. 29. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 129

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags og bygginganefndar nr. 129 frá 22. október 2016 lögð fram til kynningar.