Efling hinsegin fræðslu í grunnskólum Fjarðabyggð - Tillaga Fjarðalistans á fundi bæjarstjórnar nr. 183
Mál 1508032 Fyrst á dagskrá 18. ágúst 2015, síðast 1. október 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Fræðslunefnd, fundur 18 liður 6
Á 183 fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar var tillögu Fjarðalistans um eflingu hinsegin fræðslu í grunnskólum Fjarðabyggðar vísað til umfjöllunar í fræðslunefnd. Fræðslunefnd lýsir ánægju með tillöguna og felur fræðslustjóra að vinna að nánari útfærslu í samráði við skólastjórnendur og kynna útfærsluhugmyndir á næsta fundi fræðslunefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 184 liður 11.6
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 18“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Fræðslunefnd, fundur 20 liður 4
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem fram kemur tillaga fræðslustjóra og skólastjóra um útfærsla á hinsegin fræðslu í grunnskólum Fjarðabyggðar. Lagt er til að samið verði um árlega heimsókn samtakanna "78 í skólana og jafnframt fengin ráðgjöf og námsefni frá samtökunum um hvernig best verði að frekari fræðslu staðið í hverjum skóla. Fræðslunefnd styður framkomna hugmynd.
-
Bæjarstjórn, fundur 186 liður 4.4
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 20“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.