Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 5

Mál 1509194 Á dagskrá 1. október 2015. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  1. 2015

    Bæjarstjórn, fundur 186 liður 8

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.

    Viðaukinn felur í sér að lagt er til að viðhaldskostnaður félagslegra íbúða í málaflokki 57 verði hækkaður um kr. 12.500.000 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 þannig að hann verði samtals kr. 25.000.000 og að leigutekjur félagslegra íbúða í sama málaflokki lækki um kr. 5.000.000 og verði eftir lækkun kr. 60.395.155.

    Lesa alla bókunina (97 orð til viðbótar)

    Samtals eru áhrifin af auknum rekstrarkostnaði og lækkuðum tekjum á árinu 2015 kr. 17,500,000 og mun rekstrarniðurstaða málaflokksins lækka um sömu niðurstöðu og verða tap uppá kr. 15.291.000 í stað afgangs uppá kr. 2.209.000. Jafnframt er lagt til að fjármagna aukinn rekstrarkostnað og lækkaðar tekjur með lækkun á eigin fé Félagslegra íbúða og lántöku hjá aðalsjóði Fjarðabyggðar.

    Eigið fé málaflokksins Félagslegar íbúðir mun lækka um kr. 17.500.000 og handbært fé aðalsjóðs mun lækka um sömu upphæð eða kr. 17.500.000 til samræmis við ofangreint og verða kr. 319.360.000 í árslok 2015

    Viðaukinn staðfestur af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.