Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Drög frumvarps um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga til umsagnar

Mál 1509115 Fyrst á dagskrá 21. september 2015, síðast 1. október 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 443 liður 11

    Fram lagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði). Fjallar um að Jöfnunarsjóður á árunum 2015, 2016 og 2017 greiði sveitarfélögum sérstakt framlag sem tekið skal af tekjum sjóðsins skv. a-lið 1. mgr. 8. gr. a áður en tekjunum er ráðstafað samkvæmt ákvæði 9. gr. Árlegt heildarframlag sjóðsins samkvæmt þessu skal á hverju þessara ára samsvara 2,12% af tekjum ríkissjóðs það ár af sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum nr. 155/2010, með síðari breytingum.Til viðbótar við sérstakt framlag ársins 2015 skv. 1. mgr. skal bætast framlag Jöfnunarsjóðs sem samsvarar 1,06% af tekjum ríkissjóðs á árinu 2014 af sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum nr. 155/2010, með síðari breytingum.

    Bæjarráð felur fjármálatjóra að yfirfara frumvarpið og veita umsögn.

  2. Bæjarstjórn, fundur 186 liður 1.11

    Fundargerðin „Bæjarráð - 443“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is