Viðhaldsþörf íbúða Fjarðabyggðar
Mál 1509109 Fyrst á dagskrá 28. september 2015, síðast 1. október 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 444 liður 6
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Lagt fram minnisblað frá eigna- og framkvæmdafulltrúa, dagsett 16. september 2015, varðandi viðhaldsþörf íbúða í eigu Fjarðabyggðar.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd vísar beiðni um hækkun viðhaldspotts úr 12,5 miljónum kr. í 25 milljónir kr. á árinu 2015 til bæjarráðs og hækkun á næstu árum til fjárhagsáætlunargerðar.
Bæjarráð samþykkir að viðhaldspottur félagslegs húsnæðis verði hækkaður í 25 milljónir kr.
Fjármálastjóra falið að gera viðauka og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
Viðhaldsþörf íbúða i félagslegu húsnæði vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2016.
-
Bæjarstjórn, fundur 186 liður 2.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 444“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.