Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 475

23. maí 2016, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Gestsdóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 201 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 474 og 475 teknar til umræðu og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 23. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017

    Mál 1605024 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Lögð fram drög að reglum um gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 ásamt minnisblaði fjármálastjóra um áætlunargerðina.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti reglurnar með breytingum sem lagðar eru til á fundinum og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 1605102 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Farið yfir mögulegar fjárfestingar vegna Skíðasvæðisins í Oddskarði m.t.t. endurskoðunar á rekstrar- og þjónustusamningi við rekstraraðila. Framlagt minnisblað fjármálastjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja viðræður við rekstraraðila um endurskoðun samnings.

  3. 3. Endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar

    Mál 1106083 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat forstöðumaður stjórnsýslu.

    Drög að mannauðsstefnu Fjarðabyggðar og drög að reglum um kjör starfsmanna lögð fram sem vinnuskjöl.

    Bæjarráð fór yfir gögnin og vísar þeim til áframhaldandi vinnu í bæjarráði.

  4. 4. Aðstöðuhús við smábátahafnir

    Mál 1503148 Allur ferill málsins

    Smíði aðstöðuhúss á Stöðvarfirði. Fyrir fundi hafnarstjórnar þann 19. maí s.l. lágu drög að verksamningi við Agat ehf. um smíði hússins. Hafnarstjórn samþykkti samninginn og felur framkvæmdastjóra að ganga frá honum. Samþykktinni vísað til staðfestingar í bæjarráði.

    Bæjarráð staðfestir verksamninginn.

  5. 5. Vegna yfirvofandi alvarlegs ástands í læknamönnun á næstu vikum og mánuðum

    Mál 1605120 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf frá Heilbrigðisstofnun Austurlands vegna læknamönnunar stofnunarinnar.

    Bæjarráð tekur undir áhyggjur stofnunarinnar og óskar eftir fundi með framkvæmdastjóra og lækningaforstjóra stofnunarinnar.

  6. 6. Áskorun til bæjarstjórnar vegna ofanflóðavarna í Neskaupstað

    Mál 1604140 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf frá Dagfinni Smára og 9 öðrum einstaklingum vegna ofanflóðavarna í Neskaupstað.

    Bæjarráð vísar til bókunar sinnar frá 2. maí s.l. Þá vill bæjarráð árétta að bæjarstjórn Fjarðabyggðar mun hafa öryggi íbúa sinna í fyrirrúmi hér eftir sem hingað til við gerð ofanflóðamannvirkja í sveitarfélaginu. Ofanflóðamat og frumathugun liggja fyrir og munu hönnunargögn vegna varnarmannvirkjanna taka tillit til umhverfis og aðstæðna. íbúar eru hvattir til að koma með athugasemdir í lögboðnu ferli sem er opið og vel kynnt.

  7. 7. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2016

    Mál 1603122 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 63 frá 18.maí 2016, lögð fram til kynningar.

  8. 8. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 145

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 17. maí lögð fram til kynningar.

  9. 9. Hafnarstjórn - 163

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. maí lögð fram til kynningar.