Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 145

17. maí 2016, kl. 16:00 til 00:00, Nesskóla í Neskaupstað. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 475 liður 8

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 17. maí lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 201 liður 3

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 17. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 670,mál til umsagnar frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir)

    Mál 1605051 Allur ferill málsins

    670. mál til umsagnar frá Alþingi frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir).

    Eigna- skipulags og umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við umræddar breytingar á lögum um umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir).

  2. 2. 673.mál til umsagnar frumvarp til laga um breyt. á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð

    Mál 1605050 Allur ferill málsins

    673. mál til umsagnar frá Alþingi frumvarp til laga um breyt. á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð.

    Eigna- skipulags og umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við umræddar breytingar á lögum um Vatnajökusþjóðgarð.

  3. 3. 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda

    Mál 1502042 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi Sjóminjasafns Austurlands, dagsett 11. maí 2016, þar sem tekin eru til umfjöllunar skipulagsmál í útbæ Eskifjarðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur málið fyrir að nýju á næsta fundi.

  4. 4. Leikskóli Neseyri - lóðar- og gatnaframkvæmdir

    Mál 1510088 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fór í vettvangsferð og lýst vel á.

  5. 5. Neskóli viðhaldsmál

    Mál 1605022 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fór í vettvangsferð. Ljóst er að klæða þarf skólann og komast fyrir rakaskemmdir á jarðhæð. Sérfræðingar í málefnum myglusveppa verða hafðir með í ráðum um þær aðgerðir sem farið verður í. Nefndin felur sviðstjóra að vinna áfram að undirbúningi framkvæmda og tryggja verktaka til starfsins. fjárhagsþætti verkefnisins vísað til bæjarráðs

  6. 6. Vinna við landáætlun um uppbyggingu innviða - greining á uppbyggingarþörf

    Mál 1605015 Allur ferill málsins

    Erindi sambandsins frá 2.maí er varðar vinnu við landsáætlun um uppbyggingu ferðamannastaða og innviða.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefndar tilnefnir umhverfisstjóra sem tengilið við verkefnið.

  7. 7. Átak í að fjarlægja ónýtar girðingar á Austurlandi

    Mál 1605077 Allur ferill málsins

    Náttúruverndarsamtök Austurlands óska eftir samstarfi vegna átaks í að fjarlægja ónýtar girðingar á Austurlandi og upplýsingum um tengilið vegna verkefnisins fyrir 31.maí nk.

    Bæjarráð tók vel í erindið og vísar því til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í bókunina og felur umhverfisstjóra að halda utan um verkefnið.

  8. 8. Landbúnaðarnefnd - 15

    Fundargerðin í heild

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykktir fundargerðina fyrir sitt leiti.

    1. 8.1 Refa- og minkaveiði fyrirkomulag 20161002108
    2. 8.2 Kortlagning beitarsvæða í Fjarðabyggð
    3. 8.3 Hrossabeit í landi Kollaleiru
  9. 9. 740 Miðstræti 26 byggingarleyfi - sólpallur

    Mál 1605084 Allur ferill málsins

    Lögð fram ódagsett byggingarleyfisumsókn Hugrúnar Ísaksdóttur þar sem sótt er um leyfi til að byggja 40m2 pall með skjólgirðingum við hús hennar að Miðstræti 26 á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.