Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Refa og minkaveiði 2010-2011

Mál 1002108 Fyrst á dagskrá 2. mars 2010, síðast 17. maí 2016. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, Landbúnaðarnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2010

    Bæjarráð, fundur 187 liður 5

    Umhverfisfulltrúi sat þennan lið fundarins. Umhverfisfulltrúi fór yfir framlagðar tillögur landbúnaðarnefndar um fyrirkomulag refa- og minkaveiða sem samþykktar voru í umhverfis- og skipulagsnefnd 24.febrúar. Viðbótarkostnaður á árinu 2010 vegna nýs fyrirkomulags er áætlaður að hámarki um 1 milljón. Bæjarráð felur umhverfissviði að fara yfir málið með landbúnaðarnefnd og vinna úr þeim fjárheimildum sem tiltækar eru.

  2. Landbúnaðarnefnd, fundur 15 liður 1

    Framlagt minnisblað umhverfisfulltrúa.  Landbúnaðarnefnd leggur til að ráðnir verði veiðimenn á svæðin og að greiddar verði kr. 10.000.- fyrir ref og  kr. 3.500.- fyrir hvern mink.  Veiðikvótinn verði lækkaður þannig að hann rúmist innan fjárheimilda.  Hámark til minkaveiða verði kr. 750.000.-

  3. 2016

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 145 liður 8.1

    Fundargerðin „Landbúnaðarnefnd - 15“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Refa- og minkaveiði fyrirkomulag 2016

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is