Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 146

30. maí 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 477 liður 14

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 146 frá 30.maí 2016, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 202 liður 3

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 30. maí s.l. samþykkt með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda

    Mál 1502042 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar hugmyndir Kömmu Daggar Gísladóttur að safnasvæði með lifandi tengingu við samfélagið og hugmyndavinna nemenda og kennara í safnafræði um framtíð og skipulag safnastarfs á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd lýst vel á framkomnar tillögur og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið milli fundi.

  2. 2. 730 Vallagerði 15 - Byggingarleyfi,sólpallur

    Mál 1605146 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Andra Martins Sigurðssonar fh. Ísaks Fannars Sigurðssonar, dagsett 23. maí 2016, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 50 m2 sólpall/stækkun svala við hús hans að Vallargerði 15 á Reyðarfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  3. 3. 735 Túngata 8 - Byggingarleyfi,bílskúr

    Mál 1605130 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Björgvins Björgvinssonar, dagsett 23. maí 2016, þar sem sótt er um leyfi til að klæða bílskúr hans að Túngötu 8 á Eskifirði að utan með báruklæðningu og einangra.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  4. 4. 750 Skólavegur 84 Byggingarleyfi - Sólpallur

    Mál 1605096 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Birgis Kristmundssonar, dagsett 16. maí 2016, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 12.5 m2 sólpall/stækkun svala við hús hans að Skólavegi 84 á Fáskrúðsfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  5. 5. Umsókn um stöðuleyfi - gámur

    Mál 1605136 Allur ferill málsins

    Lögð fram stöðuleyfisumsókn Björgvins Sveinssonar fh. Útgerðarfélagsins Þórs ehf, dagsett 24. maí 2016, þar sem óskað er eftir áframhaldandi stöðuleyfi fyrir gám undir hákarlaverkun ofan Norðfjarðarvegar við Naustahverfi á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að stöðuleyfi verði veitt til allt að 8 mánaða eða þegar verkun hákarls likur. Leyfið er einnig skilyrt því að umhverfi gámsins verði gert snyrtilegt og ella verði leyfið afturkallað.

  6. 6. 750 Notkun fjöleignarhússins að Búðavegi 35

    Mál 1510182 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf eiganda efri hæðar Búðavegar 35, dagsett 24. maí 2016, vegna álits kærunefndar húsamála í máli 53/2015.

  7. 7. 735 Strandgata 12 - lóðamál

    Mál 1301195 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf vegna lóðarmála Strandgötu 12 á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til bæjarráðs til umfjöllunar.

  8. 8. Eskjutún - tenging við rafmagn

    Mál 1605125 Allur ferill málsins

    Íbúasamtök Eskifjarðar óska eftir gengið verði frá rafmagni við Eskju túnið svo hægt sé að nýta það fyrir

    viðburði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til úrvinnslu hjá sviðstjóra framkvæmda-umhverfis og veitusviðs.

  9. 9. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar

    Mál 1605156 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra framkvæmda-umhverfis og veitusviðs að lista upp verkefni sem nefndin hefur rætt um að setja í forgang.

  10. 10. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 2016

    Mál 1602074 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar

  11. 11. Setubekkur við göngustíg á Eskifirði

    Mál 1605124 Allur ferill málsins

    Íbúasamtök Eskifjarðar óska eftir í samvinnu við Fjarðabyggð að setja upp setubekk við göngustíg

    meðfram sjónum, fyrir utan lögreglustöðina.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til úrvinnslu hjá sviðstjóra framkvæmda-umhverfis og veitusviðs.

  12. 12. Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2015

    Mál 1510008 Allur ferill málsins

    Lagðir voru fram tveir samningar við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða vegna Fólkvangsins í Neskaupstað annars vegar og Hólmanes - Fólkvangur og friðland hins vegar.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir samningana fyrir sitt leyti og felur sviðstjóra að koma þeim í framkvæmd.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að skoða framtíðar skipulaga Fólkvangsins og friðlandsins í Hólmanesi og umsjón þeirra.