Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Umsókn um stöðuleyfi - gámur

Mál 1605136 Fyrst á dagskrá 30. maí 2016, síðast 9. júní 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 146 liður 5

    Lögð fram stöðuleyfisumsókn Björgvins Sveinssonar fh. Útgerðarfélagsins Þórs ehf, dagsett 24. maí 2016, þar sem óskað er eftir áframhaldandi stöðuleyfi fyrir gám undir hákarlaverkun ofan Norðfjarðarvegar við Naustahverfi á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að stöðuleyfi verði veitt til allt að 8 mánaða eða þegar verkun hákarls likur. Leyfið er einnig skilyrt því að umhverfi gámsins verði gert snyrtilegt og ella verði leyfið afturkallað.

  2. Bæjarstjórn, fundur 202 liður 3.5

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 146“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is