Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2015

Mál 1510008 Fyrst á dagskrá 2. maí 2016, síðast 9. júní 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 144 liður 3

    Lagt var fram minnisblað varðandi úthlutun úr Framkvæmdsjóði Ferðamannastaða vorið 2016.

    Fjarðabyggð fékk úthlutað 9,0 mkr. vegna áframhaldandi uppbyggingu við Hólmaness, og 2,4 mkr. til hönnunar og skipulagsvinnu við Fólkvanginn í Neskaupstað.

    Einnig fékk Minjastofnun Íslands úthlutað 1,35 mkr. til þess að bæta öryggi við skipsflakið Tanga í Mjóafirði, en sveitarfélagið er samstarfsaðili í því verkefni.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur framkvæmdasviði að vinna málið áfram og undirbúa framangreind verkefni þannig að þau komist á framkvæmdastig.

  2. Bæjarstjórn, fundur 200 liður 7.3

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 144“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 146 liður 12

    Lagðir voru fram tveir samningar við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða vegna Fólkvangsins í Neskaupstað annars vegar og Hólmanes - Fólkvangur og friðland hins vegar.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir samningana fyrir sitt leyti og felur sviðstjóra að koma þeim í framkvæmd.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að skoða framtíðar skipulaga Fólkvangsins og friðlandsins í Hólmanesi og umsjón þeirra.

  4. Bæjarstjórn, fundur 202 liður 3.12

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 146“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is