Áskorun til bæjarstjórnar vegna ofanflóðavarna í Neskaupstað
Mál 1604140 Fyrst á dagskrá 2. maí 2016, síðast 26. maí 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurUmhverfi og veitur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 472 liður 3
Framlagður undirskriftarlisti tíu íbúa í Neskaupstað vegna ofanflóðavarna á staðnum. Í erindinu er farið fram á skýringar innanríkisráðuneytisins á túlkun laga um ofanflóðasjóð. Fjarðabyggð mun ekki svara fyrir fyrirspurnir til innanríkisráðuneytisins en vekur athygli á því að ofanflóðavarnir eru unnar á grundvelli laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum frá 1997 og hættumati sem gert var fyrir Neskaupstað og staðfest 2002. Þessi framvæmd sem og aðrar hafa verið vel kynntar og hefur gefist og mun gefast, tækifæri til að koma athugasemdum að í því ferli, m.a. þegar hönnun mannvirkjanna verður kynnt. Þá mun sveitarfélagið leggja áherslu á, nú sem fyrr, að eftirlit með framkvæmdinni verði til fyrirmyndar og samstarf við verkaðila gott. Samstarf við Ofanflóðasjóð hefur í alla staði verið faglegt og sjónarmiðum allra aðila hefur verið haldið á lofti.
-
Bæjarstjórn, fundur 200 liður 4.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 472“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 475 liður 6
Fram lagt bréf frá Dagfinni Smára og 9 öðrum einstaklingum vegna ofanflóðavarna í Neskaupstað.
Bæjarráð vísar til bókunar sinnar frá 2. maí s.l. Þá vill bæjarráð árétta að bæjarstjórn Fjarðabyggðar mun hafa öryggi íbúa sinna í fyrirrúmi hér eftir sem hingað til við gerð ofanflóðamannvirkja í sveitarfélaginu. Ofanflóðamat og frumathugun liggja fyrir og munu hönnunargögn vegna varnarmannvirkjanna taka tillit til umhverfis og aðstæðna. íbúar eru hvattir til að koma með athugasemdir í lögboðnu ferli sem er opið og vel kynnt.
-
Bæjarstjórn, fundur 201 liður 2.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 475“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.