Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 165

23. ágúst 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 486 liður 15

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 165 lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 205 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 165 frá 23. ágúst 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016

    Mál 1601010 Allur ferill málsins

    Fundargerðir Hafnasambands Íslands nr. 386 dags. 16. ágúst 2016 lögð fram til kynningar.

  2. 2. Stefnumörkun fyrir Hafnasamband Íslands

    Mál 1608071 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 19. ágúst 2016 þar sem óskað er eftir umsögn um stefnumörkun Hafnasambands Íslands og skulu þær berast fyrir 16. september 2016. Stefnumörkunin verðu svo tekin til umræðu á hafnasamabandsþingi á hausti komandi.

  3. 3. Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði

    Mál 1201079 Allur ferill málsins

    Umsögn um tillögu að matsáætlun um 4000 tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði. Var vísað til framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna og skipulags- og byggingafulltrúa til umsagnar. Lagt fram til kynningar.

  4. 4. Komur skemmtiferðaskipa 2016

    Mál 1607033 Allur ferill málsins

    Bréf Kristins Þórs Jónssonar dags. 7. júlí 2016 vísað til hafnarstjórnar frá bæjarráði. Farið var yfir erindi bréfsins og framkvæmdastjóra falið að svara bréfritara í samræmi við umræðu á fundinum.

  5. 5. Styrkbeiðni frá Sjósportsklúbbi Austurlands

    Mál 1604155 Allur ferill málsins

    Bréf Sjósportsklúbbs Austurlands dags. 15. júlí 2016 þar sem óskað er eftir styrk fyrir inntaki og grind í hús Sjóminjasafns Austurlands á Eskifirði. Erindinu er hafnað, hafnarstjórn veitir ekki styrki til íþróttafélaga þar sem starfsemi þeirra fellur undir annan málaflokk hjá sveitarfélaginu.

  6. 6. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017 ásamt langtímaáætlun

    Mál 1605165 Allur ferill málsins

    Undirbúningur fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2017 ásamt gjaldskrá og langtímaáætlun. Vísað til áframhaldandi vinnu framkvæmdastjóra.