Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 166

6. september 2016, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 488 liður 31

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. september 2016, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 206 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. september 2016, staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerðir CI á árinu 2016

    Mál 1601011 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá stjórnarfundi Cruise Iceland dags. 24. ágúst 2016 lögð fram til kynningar.

  2. 2. Sóttvarnaráætlun - hafnir og skip

    Mál 1606137 Allur ferill málsins

    Embætti landlæknis hefur undanfarnar vikur unnið að gerð viðbragðsáætlunar sóttvarna - hafnir og skip, en vinna við við gerð áætlunarinnar er enn í gangi. Drög að áætluninni lögð fram til kynningar.

  3. 3. Efnistaka í Reyðarfirði

    Mál 1608111 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum liggur minnisblað frá umhverfisstjóra dags. 2. september 2016 vegna vinnu við öflun efnistökuleyfis úr sjó í Reyðarfirði. Lagt fram til kynningar

  4. 4. Skýrsla innanríkisráðuneytisins um stöðu hafna

    Mál 1608139 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 31. ágúst 2016, þar sem sambandið sendir höfnum landsins skýrslu innanríkisráðuneytisins um stöðu hafna til upplýsingar. Skýrsluna er að finna á slóðinni http://www.althingi.is/altext/pdf/145/s/1590.pdf. Lagt fram til kynningar.

  5. 5. Ósk um lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði

    Mál 1504173 Allur ferill málsins

    Erindi frá Stefáni Ingvarssyni hjá Egersund dags. 31. ágúst 2016, þar sem bent er á breyttar forsendur fyrir beiðni þeirra um lengingu kants. Erindinu vísað til vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2017.

  6. 6. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017 ásamt langtímaáætlun

    Mál 1605165 Allur ferill málsins

    Undirbúningur fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2017 ásamt gjaldskrá og langtímaáætlun. Vísað til áframhaldandi vinnu framkvæmdastjóra.