Hafnarstjórn, fundur 167
13. september 2016, kl. 16:00 til 17:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Einar Már Sigurðarson, varamaður
Starfsmenn
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 489 liður 25
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 167 frá 13.september 2016, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 207 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 167 frá 13.september 2016, staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fiskmarkaður Austurlands - Ársreikningur 2015
Mál 1609022 Allur ferill málsins
Ársreikningur 2015 fyrir Fiskmarkaðs Austurlands lagður fram til kynningar.
-
2. Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði
Mál 1503131 Allur ferill málsins
Fundargerð dags. 13. september 2016 frá opnun tilboða í rekstur stálþils á Norðfirði. Fjögur tilboð bárust og átti Trévangur lægsta boð upp á 27,5 m.kr. eða 92,6% af kostnaðaráætlun sem var 29,7 m.kr.
Lagt er til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
-
3. Gjaldskrá hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017
Mál 1608072 Allur ferill málsins
Umfjöllun um endurskoðaða gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2017. Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að endurskoðun gjaldskrár en gjaldskráin hækkar miðað við byggingavísitölu síðustu 12 mánaða og vísar henni til staðfestingar í bæjarráði.
-
4. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017 ásamt langtímaáætlun
Mál 1605165 Allur ferill málsins
Undirbúningur fjárhagsáætlunarvinnu Hafnarsjóð Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 ásamt gjaldskrá og langtímaáætlun. Hafnarstjórn samþykkir áætlunina og vísar henni til bæjarráðs.