Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 168

31. október 2016, kl. 16:00 til 18:30, Eskifirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 496 liður 12

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 168 frá 31.október 2016, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 211 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 31.október 2016 staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu Samskip Skaftafell 23.september 2016

    Mál 1609148 Allur ferill málsins

    Erindi frá Samskipum dags. 23. september 2016 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Capt. Artem Chayrov skipstjóra á Ms. Samskip Skaftafell.

    Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Artem Chayrov skipstjóra á Ms. Samskip Skaftafell

  2. 2. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Capt. Lesniak Jakub á Mv Marmaui

    Mál 1610004 Allur ferill málsins

    Erindi frá Thorship dags. 29. september 2016 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Capt. Lesniak Jakub skipstjóra á Mv. Marmaui.

    Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Lesniak Jakub skipstjóra á Mv. Marmaui.

  3. 3. 715 Mjóifjörður flotbryggjur

    Mál 1610186 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um flotbryggjumál á Mjóafirði en komið hefur í ljós að flotbryggjurnar þar sem eru út tré eru mjög illa farnar.

    Framkvæmdastjóra falið að leysa málið.

  4. 4. 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna

    Mál 1603089 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða um hugmyndir af nýjum hafnarkanti á Eskifirði í framhaldi af síðasta fundi.

    Lögð fram tillaga 4 breyting frá fyrri hugmyndum. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.

  5. 5. 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði

    Mál 1505078 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá opnun tilboða í gerð hafnarkants á Fáskrúðsfirði frá 27. september 2016. Eitt tilboð barst í verkið og var það frá Hagtak hf. upp á 296,8 millj.kr. eða 147,4% af kostnaðaráætlun sem var 201,3 millj.kr. Tilboð hefur verið yfirfarið.

    Hafnarstjórn staðfestir að hafna því að taka innkomnu tilboði í verkið og leggur til að af tilskildum fresti verði framkvæmdastjóra falið að leita samninga við verktaka um verkið.

  6. 6. 10.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði - beiðni um umsögn

    Mál 1609087 Allur ferill málsins

    Beiðni Skipulagsstofnunar um umsögn um 10.000 tonna framleiðslu á laxi í Stöðvarfirði. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar.

    Framkvæmdastjóra hafna og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að gera drög að umsögn og leggja fyrir nefndirnar og bæjarráð til afgreiðslu. Hafnarstjórn staðfestir framlögð drög að umsögn ásamt minnisblaði með tillögum að viðbót við drögn.

  7. 7. 10.000 tonna laxeldi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa - beiðni um umsögn

    Mál 1609085 Allur ferill málsins

    Beiðni Skipulagsstofnunar um umsögn um 10.000 tonna laxeldi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar. Framkvæmdastjóra hafna og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að gera drög að umsögn og leggja fyrir nefndirnar og bæjarráð til afgreiðslu. Hafnarstjórn staðfestir framlögð drög að umsögn ásamt minnisblaði með tillögum að viðbót við drögn.

  8. 8. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016

    Mál 1601010 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 388 dags. 12. október 2016 lögð fram til kynningar.

  9. 9. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016

    Mál 1601010 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 387 dags. 19. september 2016 lögð fram til kynningar.

  10. 10. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017 ásamt langtímaáætlun

    Mál 1605165 Allur ferill málsins

    Formaður og framkvæmdastjóri gerðu grein fyrir fundi með bæjarráði um fjárhagsáætlun ársins 2017 og breytingar sem gera þarf á áætluninni milli umræðna í bæjarstjórn.