Bæjarráð, fundur 496
7. nóvember 2016, kl. 08:30 til 11:35, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 211 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð bæjarráðs frá 7.nóvember 2016, staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
Mál 1605024 Allur ferill málsins
Áframhaldandi vinna við fjárhagsáætlun milli umræðna í bæjarstjórn. Stefnt er á að gjaldskrár verði teknar til umfjöllunar á fundi 21.nóvember. Áframhaldandi vinna við áætlun verður á næsta fundi bæjarráðs.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 - 2020
Mál 1610152 Allur ferill málsins
Áframhaldandi vinna, við þriggja ára fjárhagsáætlun, milli umræðna í bæjarstjórn. Áframhaldandi vinna við áætlun verður á næsta fundi bæjarráðs.
-
3. Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1602052 Allur ferill málsins
Framlagt sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - september 2016, skatttekjur og launakostnað fyrir tímabilið janúar - október 2016.
-
4. Mótmæli vegna fyrirhugaðs flutnings á Sjóminjasafni og Jenssenshúss út í Mjóeyrarvík - undirskriftarlisti
Mál 1611024 Allur ferill málsins
Lagður fram undirskriftarlisti íbúa á Eskifirði er varðar fyrirhugaðan flutning Sjóminjasafns Austurlands og Jensenshúss út í Mjóeyrarvík. Bæjarráð vill árétta að ekki er verið að taka ákvörðun um flutning Gömlu Búðar og Jensenshúss, heldur er verið að vinna skipulagsvinnu þar sem ákveðin framtíðarsýn er sett fram. Undirskriftarlistum er vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar sem taki jafnframt ákvörðun um beiðni um íbúafund.
-
5. Fundur formanna sambanda með starfshóp um endurskoðun rekstrarfyrirkomulags flugvalla
Mál 1611008 Allur ferill málsins
Innanríkisráðuneytið hefur skipað starfshóp til að endurskoða rekstrarfyrirkomulag flugvalla. Hópurinn hefur áhuga á að upplýsa hagsmunaaðila um verkefnið og fá fram athugasemdir og ábendingar þeirra, hvort sem er bréflega eða á fundi.
Bæjarráð Fjarðabyggðar vill árétta að flugsamgöngur innanlands eru mikilvægustu almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar og að áhersla verði á að bæta þær samgöngur í störfum starfshópsins ekki síst með tilliti til verðlags á innanlandsflugi. Er alþjóðaflugvöllurinn á Egilsstöðum mjög mikilvægur í því samhengi. Þá vill bæjarráð einnig lýsa yfir nauðsyn þess að sjúkraflugvöllum, líkt og Norðfjarðarflugvelli, verði tryggt nægjanlegt fjármagn til reksturs og viðhalds í framtíðinni, enda órjúfanleg tengsl vallarins við umdæmisjúkrahús Austurlands í Neskaupstað. Bæjarráð leggur til að SSA hafi frumkvæði að því að fundað verði með hópnum.
Vakin er athygli á fyrirhuguðum fundi um framtíð Reykjavíkurflugvallar, sem verður á Akureyri 10. nóvember kl. 17:00.
-
6. Rekstur Félagslundar 2016
Mál 1605020 Allur ferill málsins
Fyrirspurn um rekstur Félagslundar. Trúnaðarmál.
-
7. Kirkjustígur 7 - Fyrirhugaðar framkvæmdir við Lambeyrará
Mál 1610185 Allur ferill málsins
Bréf frá Nordik lögfræðiþjónustu slf. fyrir hönd eiganda fasteignarinnar að Kirkjustíg 7 Eskifirði. Jafnframt lagt fram minnisblað sviðsstjóra.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur falið sviðstjóra að svara bréfinu og vísaði málinu jafnframt til staðfestingar bæjarráðs. Bæjarráð felur sviðsstjóra að svara erindinu í samráði við bæjarstjóra.
-
8. Snjómokstur í Fjarðabyggð 2016/2017
Mál 1609102 Allur ferill málsins
Farið að nýju yfir skipulag og verklagsreglur er varða snjómokstur í Fjarðabyggð. Lagt fram minnisblað forstöðumanns framkvæmda- og þjónustumiðstöðvar. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt fyrirliggjandi skipulag og verklagsreglur og vísar þeim til staðfestingar bæjarráðs. Bæjarráð vísar verklagsreglum til bæjarstjóra til endanlegs frágangs og framsetningar. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
9. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017
Mál 1609042 Allur ferill málsins
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað Mjóafirði 15 þorskígildistonnum og Stöðvarfirði 154 þorskígildistonnum. Vilji sveitarstjórn setja sérstök skilyrði varðandi úthlutun skal skila rökstuddum tillögum til ráðuneytisins eigi síðar en 30. nóvember. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra hafna að útbúa sérstök skilyrði í samræmi við fyrri ár og leggja fyrir bæjarráð ekki síðar en 21.nóvember.
-
10. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2016
Mál 1603017 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 843, lögð fram til kynningar.
-
11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 158
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 158 frá 2.nóvember 2016, lögð fram til kynningar.
- 11.1 Náttúrustofa Austurlands - kerfisbundin úttekt á villtu dýralífi í Fólkvanginum Neskaupstað1608056
- 11.2 735 Bleiksárhlíð 60 - byggingarleyfi, gönguhurð1610177
- 11.3 755 Sævarendi 1 - byggingarleyfi, breytt notkun1610200
- 11.4 Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð1402076
- 11.5 730 Sunnugerði - botnlangi1611002
- 11.6 Goðatindur - ljósleiðari1610196
- 11.7 Strenglagning um Brekkugjá - beiðni um umsögn1610171
- 11.8 Göngustígar í Fjarðabyggð1606061
- 11.9 Ársfundur náttúruverndarnefnda og umhverfisstofnunar 20161610112
- 11.10 Kirkjustígur 7 - Fyrirhugaðar framkvæmdir við Lambeyrará1610185
- 11.11 Snjómokstur í Fjarðabyggð 2016/20171609102
-
12. Hafnarstjórn - 168
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 168 frá 31.október 2016, lögð fram til kynningar.
- 12.1 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu Samskip Skaftafell 23.september 20161609148
- 12.2 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Capt. Lesniak Jakub á Mv Marmaui1610004
- 12.3 715 Mjóifjörður flotbryggjur1610186
- 12.4 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna1603089
- 12.5 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði1505078
- 12.6 10.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði - beiðni um umsögn1609087
- 12.7 10.000 tonna laxeldi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa - beiðni um umsögn1609085
- 12.8 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20161601010
- 12.9 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20161601010
- 12.10 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017 ásamt langtímaáætlun1605165