Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 158

2. nóvember 2016, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 496 liður 11

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 158 frá 2.nóvember 2016, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 211 liður 3

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 158, 159 og 160, teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 2.nóvember 2016, staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Náttúrustofa Austurlands - kerfisbundin úttekt á villtu dýralífi í Fólkvanginum Neskaupstað

    Mál 1608056 Allur ferill málsins

    Tillaga umhverfisstjóra um úttekt og vöktun á fánu og flóru í fólkvöngum Fjarðabyggðar - Hólmanesi og Fólkvanginum Neskaupstað.

    Nefndin lagði til á fundi sínum 12. ágúst sl. að leita tilboða hjá Náttúrustofu Austurlands varðandi úttekt og vöktun á villtu dýralífi í Fólkvanginum Neskaupstað. Nefndinni líst vel á tillögu umhverfisstjóra og felur honum að vinna frekari útfærslu og leita styrkja.

  2. 2. 735 Bleiksárhlíð 60 - byggingarleyfi, gönguhurð

    Mál 1610177 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Grétars Rögnvarssonar, fh. Gerðisbrúar ehf, dagsett 25. október 2016, þar sem sótt er um leyfi til að setja gönguhurð á vesturstafn húss félagsins að Strandgötu 68 á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  3. 3. 755 Sævarendi 1 - byggingarleyfi, breytt notkun

    Mál 1610200 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Alberts Ó. Geirssonar fh. kross ehf, dagsett 31. október 2016, þar sem óskað er eftir áliti nefndarinnar á breytingu hluta hússins að Sævarenda 1 á Stöðvarfirði í íbúðir. Samkvæmt Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 er Sævarendi 1 innan reits I1 sem er iðnaðarsvæði. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 31. vegna skipulagsmála.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt breytta notkun miðað við gildandi aðalskipulag og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda og skoða hugsanlega breytingu á aðalskipulagi.

  4. 4. Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð

    Mál 1402076 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu stöðuleyfa fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa og umhverfisstjóra, dagsett 31. október 2016, vegna stöðuleyfa.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur varaformanni, skipulags- og byggingarfulltrúa og umhverfisstjóra að vinna málið frekar.

  5. 5. 730 Sunnugerði - botnlangi

    Mál 1611002 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd er að vinna með hugmyndir um að Sunnugerði á Reyðarfirði, verði gerð að botnlangagötu til bráðabirgða. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að kynna íbúum götunnar fyrirhugaðar breytingar og fá afstöðu þeirra til málsins.

  6. 6. Goðatindur - ljósleiðari

    Mál 1610196 Allur ferill málsins

    Lagður fram tölvupóstur Eyjólfs Jóhannssonar hjá Rafey ehf fh. Mílu ehf, dagsettur 27. október 2016 þar sem óskað er eftir heimild til að leggja ljósleiðara að tækjahúsinu á Goðatindi.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir ítarlegri upplýsingum um framkvæmdina. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

  7. 7. Strenglagning um Brekkugjá - beiðni um umsögn

    Mál 1610171 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 21. október 2016, þar sem í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/2000 og 12. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum, er óskað eftir umsögn um strenglögn um Brekkugjá milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar. Óskað er umsagnar á því hvort og á hvaða forsendum framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að framkvæmdin sé ekki umhverfismatsskyld lagnaleið í Fjarðabyggð.

  8. 8. Göngustígar í Fjarðabyggð

    Mál 1606061 Allur ferill málsins

    Lagðar fram teikningar af göngu- og hjólastígum í Fjarðabyggð.

  9. 9. Ársfundur náttúruverndarnefnda og umhverfisstofnunar 2016

    Mál 1610112 Allur ferill málsins

    Fimmtudaginn 10. nóvember 2016 verður haldinn 19. ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga. Gestgjafi að þessu sinni er Hvalfjarðarsveit. Fundurinn verður með svipuðu sniði og undanfarin ár, en yfirskriftin að þessu sinni er Tökumst á við áskoranir - verkfæri í náttúruvernd. Umhverfisstjóra falið að sækja fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar og ganga frá skýrslu náttúruverndarnefndar.

  10. 10. Kirkjustígur 7 - Fyrirhugaðar framkvæmdir við Lambeyrará

    Mál 1610185 Allur ferill málsins

    Bréf frá Nordik lögfræðiþjónustu slf. fyrir hönd eiganda fasteignararinnar að Kirkjustíg 7 Eskifirði.

    Nefndin felur sviðstjóra að svara bréfinu og vísar málinu jafnframt til staðfestingar bæjarráðs.

  11. 11. Snjómokstur í Fjarðabyggð 2016/2017

    Mál 1609102 Allur ferill málsins

    Farið að nýju yfir skipulag og verklagsreglur er varðar snjómokstur í Fjarðabyggð.

    Eigna- skipulags og umhverfisnefnd samþykkir fyrirliggjandi skipulag og verklagsreglur og vísar til staðfestingar bæjarráðs.