Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 159

6. nóvember 2016, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 497 liður 20

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 159 frá 7.nóvember 2016, lögð fram til kynningar .

  • Bæjarstjórn, fundur 211 liður 4

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 158, 159 og 160, teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. nóvember 2016, samþykkt með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Drög að nýrri reglugerð um heimagistingu o.fl.

    Mál 1611016 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarféla, dagsett 3. nóvember 2016, vegna kynningar og umsagnar um drög atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins að reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að skoða reglugerðina og vinna umsögnina til Sambands íslenskra sveitarfélaga ef ástæða er til.

  2. 2. Ósk um opinn fund vegna deiliskipulags við Hlíðarenda á Eskifirði

    Mál 1610188 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Íbúasamtaka Eskifjarðar, dagsett 28. október 2016, þar sem óskað er eftir að haldinn verði opinn kynningarfundur til að fara yfir deiliskipulag Hlíðarenda. Vísað frá bæjarráði til ákvörðunar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að halda opinn fund um deiliskipulag Hlíðarenda mánudagskvöldið 21. nóvember kl 20:00 í Grunnskóla Eskifjarðar.

  3. 3. Mótmæli vegna fyrirhugaðs flutnings á Sjóminjasafni og Jenssenshúss út í Mjóeyrarvík - undirskriftarlisti

    Mál 1611024 Allur ferill málsins

    Lagðir fram undirskriftarlisti íbúa á Eskifirði er varðar fyrirhugaðan flutning Sjóminjasafns Austurlands og Jensenshúss út í Mjóeyrarvík.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að halda opinn fund um deiliskipulag Hlíðarenda mánudagskvöldið 21. nóvember kl 20:00 í Grunnskóla Eskifjarðar.

  4. 4. Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar

    Mál 1610002 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að ræða við vegagerðina og umhverfisstofnun um erindi bréfritara og þakkar erindið.

  5. 5. Viðbygging við leikskólann Lyngholt

    Mál 1611029 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað fræðslustjóra og sviðstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs vegna nýtingar Félagslundar einnig lagt fram minnisblað frá Sigurði Harðarsyni arkitekt á Batteríinu.

    Eigna-, skipulags- og umhvefisnefnd samþykkir tillögur í minnisblaði um að Félagslundur henti ekki sem skólahúsnæði.