Mótmæli vegna fyrirhugaðs flutnings á Sjóminjasafni og Jenssenshúss út í Mjóeyrarvík - undirskriftarlisti
Mál 1611024 Fyrst á dagskrá 6. nóvember 2016, síðast 17. nóvember 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 159 liður 3
Lagðir fram undirskriftarlisti íbúa á Eskifirði er varðar fyrirhugaðan flutning Sjóminjasafns Austurlands og Jensenshúss út í Mjóeyrarvík.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að halda opinn fund um deiliskipulag Hlíðarenda mánudagskvöldið 21. nóvember kl 20:00 í Grunnskóla Eskifjarðar.
-
Bæjarráð, fundur 496 liður 4
Lagður fram undirskriftarlisti íbúa á Eskifirði er varðar fyrirhugaðan flutning Sjóminjasafns Austurlands og Jensenshúss út í Mjóeyrarvík. Bæjarráð vill árétta að ekki er verið að taka ákvörðun um flutning Gömlu Búðar og Jensenshúss, heldur er verið að vinna skipulagsvinnu þar sem ákveðin framtíðarsýn er sett fram. Undirskriftarlistum er vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar sem taki jafnframt ákvörðun um beiðni um íbúafund.
-
Bæjarstjórn, fundur 211 liður 1.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 496“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 211 liður 4.3
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 159“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.