Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 495

31. október 2016, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Valdimar O Hermannsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 210 liður 1

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 495 frá 31.október 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017

    Mál 1605024 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana, auk tillögu að starfsáætlun fyrir árið 2017. Bæjarstjóri fór yfir helstu stærðir í tillögum. Bæjarráð vísar tillögu að fjárhagsáætlun og starfsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017, til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 - 2020

    Mál 1610152 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2018 - 2020. Bæjarstjóri fór yfir helstu stærðir í tillögum. Bæjarráð vísar tillögu að þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2018 - 2020, til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  3. 3. 10.000 tonna laxeldi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa - beiðni um umsögn

    Mál 1609085 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur umsögn Fjarðabyggðar auk minnisblaðs. Bæjarráð samþykkir umsögn og felur bæjarstjóra undirritun umsagnar.

  4. 4. 10.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði - beiðni um umsögn

    Mál 1609087 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur umsögn Fjarðabyggðar auk minnisblaðs. Bæjarráð samþykkir umsögn og felur bæjarstjóra undirritun umsagnar.

  5. 5. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar

    Mál 1605156 Allur ferill málsins

    Vísað til áframhaldandi umræðna milli umræðna í bæjarstjórn.

  6. 6. Leyfi til afnota af íþróttahúsi á Reyðarfirði fyrir þorrablót Reyðfirðinga 2017

    Mál 1610184 Allur ferill málsins

    Beiðni Þorrablótsnefndar Reyðfirðinga um sambærileg afnot og undanfarin ár, í janúar 2017, af íþróttahúsinu á Reyðarfirði vegna þorrablóts. Bæjarráð samþykkir afnot með sama hætti og áður og vísar málinu til íþrótta- og tómstundafulltrúa.

  7. 7. Girðing(steinhleðsla) og frágangur milli Skólavegs og Fáskrúðsfjarðakirkjugarðs

    Mál 1403148 Allur ferill málsins

    Samstarfssamningur Kolfreyjusóknar og Fjarðabyggðar til þriggja ára, um gerð steinhlaðins veggs meðfram Skólavegi á Fáskrúðsfirði. Bæjarráðs samþykkir samning og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

  8. 8. Fundagerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands 2016

    Mál 1601185 Allur ferill málsins

    Fundargerð Skólaskrifstofu Austurlands frá 3.október 2016, lögð fram til kynningar. Komin er fram beiðni um hækkun á framlagi til skrifstofunnar, m.a. vegna aukinnar sálfræðiþjónustu. Bæjarráð telur ekki þörf á að bregast við að svo stöddu þar sem óráðið er í stöður sálfræðinga innan Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við framkomna fjárhagsáætlun Skólaskrifstofu vegna ársins 2017. Vísað til kynningar í fræðslunefnd.

  9. 9. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 4. nóvember

    Mál 1610189 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands verður haldinn 4. nóvember nk. Bæjarstjóri verður fulltrúi bæjarins á aðalfundi. Vísað til kynningar í fræðslunefnd.

  10. 10. Europa Nostra menningarverðlaun ESB

    Mál 1608097 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ræða bæjarstjóra og viðurkenningar sem veittar voru Minjavernd á opnu húsi föstudaginn 28.október sl., í tilefni af menningarverðlaunum Evrópu.

  11. 11. Fundargerðir stjórnar SSA 2016

    Mál 1601213 Allur ferill málsins

    Fundargerðir stjórnar SSA frá 20.september, 6.október og 8.október 2016, lagðar fram til kynningar.

  12. 12. Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2016

    Mál 1609067 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 23.september, lögð fram til kynningar.

  13. 13. Ósk um opinn fund vegna deiliskipulags við Hlíðarenda á Eskifirði

    Mál 1610188 Allur ferill málsins

    Beiðni Íbúsamtaka Eskifjarðar um opinn fund vegna deiliskipulags við Hlíðarenda á Eskifirði. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til ákvörðunar.

  14. 14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 157

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 157 frá 24.október 2016, lögð fram til kynningar.

    1. 14.1 Aðgerðaráætlun um aukna úrgangsflokkun1609180
    2. 14.2 Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar1606041
    3. 14.3 Gjaldskrá Sorpmiðstöðvar - meðhöndlun úrgangs1610100
    4. 14.4 755 Heiðmörk 12 Byggingarleyfi - breyting á húsnæði1610070
    5. 14.5 750 Hafnargata 1 - byggingarleyfi, rífa niður geyma og byggja upp á nýtt1610119
    6. 14.6 735 Strandgata 78 - Byggingarleyfi, breytt notkun1610126
    7. 14.7 755 Sævarendi - umsókn um lóð undir jarðspennistöð1609105
    8. 14.8 740 Eyrargata 5 - umsókn um framlengingu á stöðuleyfi vinnubúða1609024
    9. 14.9 Stöðuleyfi fyrir gám - beiðni um upplýsingar um úthlutun leyfa1610149
    10. 14.10 Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð1402076
    11. 14.11 Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar1604018
    12. 14.12 Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 20171610035
    13. 14.13 Gjaldskrá framkvæmdaleyfis- og þjónustugjalda skipulagsfulltrúa 20171610037
    14. 14.14 Gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónsutugjalda byggingafulltrúa 20171610038
    15. 14.15 Gjaldskrá félagsheimila 20171610062
    16. 14.16 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 20171610049
    17. 14.17 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 20171610034
    18. 14.18 Gjaldskrá tjaldsvæða í Fjarðabyggð 20171610033
    19. 14.19 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20171610032
    20. 14.20 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 20171610031
    21. 14.21 Verkefni framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs 20161601209
    22. 14.22 Eftirlitsskýrsla með opnum leiksvæðum á Reyðarfirði, Eskifirði, og Neskaupstað1609149
    23. 14.23 Gangbrautir og hraðahindrun í Hæðargerði á Reyðarfirði1610136
    24. 14.24 Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar1610002
    25. 14.25 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar1605156