Fundur formanna sambanda með starfshóp um endurskoðun rekstrarfyrirkomulags flugvalla
Mál 1611008 Fyrst á dagskrá 7. nóvember 2016, síðast 17. nóvember 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Samgöngur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 496 liður 5
Innanríkisráðuneytið hefur skipað starfshóp til að endurskoða rekstrarfyrirkomulag flugvalla. Hópurinn hefur áhuga á að upplýsa hagsmunaaðila um verkefnið og fá fram athugasemdir og ábendingar þeirra, hvort sem er bréflega eða á fundi.
Lesa alla bókunina (106 orð til viðbótar)
Bæjarráð Fjarðabyggðar vill árétta að flugsamgöngur innanlands eru mikilvægustu almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar og að áhersla verði á að bæta þær samgöngur í störfum starfshópsins ekki síst með tilliti til verðlags á innanlandsflugi. Er alþjóðaflugvöllurinn á Egilsstöðum mjög mikilvægur í því samhengi. Þá vill bæjarráð einnig lýsa yfir nauðsyn þess að sjúkraflugvöllum, líkt og Norðfjarðarflugvelli, verði tryggt nægjanlegt fjármagn til reksturs og viðhalds í framtíðinni, enda órjúfanleg tengsl vallarins við umdæmisjúkrahús Austurlands í Neskaupstað. Bæjarráð leggur til að SSA hafi frumkvæði að því að fundað verði með hópnum.
Vakin er athygli á fyrirhuguðum fundi um framtíð Reykjavíkurflugvallar, sem verður á Akureyri 10. nóvember kl. 17:00.
-
Bæjarstjórn, fundur 211 liður 1.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 496“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.