Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 219

16. mars 2017, kl. 16:00 til 17:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 512

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 13. mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði1603023
    2. 1.2 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES1411143
    3. 1.3 Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 21703072
    4. 1.4 Vatns- og holræsagjöld á ótengdar fasteignir1702223
    5. 1.5 Áherslur HSA á árinu 2017 - brýn mál1703014
    6. 1.6 Makaskipti Nesbakka 19-21 og Hafnarbrautar 17 í Neskaupstað1611125
    7. 1.7 Öldungaráð1610001
    8. 1.8 Styrkbeiðni vegna ráðstefnunnar Auður Austurlands1703019
    9. 1.9 Sumarlokun bæjarskrifstofu 20171604148
    10. 1.10 Almenningssamgöngur - ungmennaráð1606037
    11. 1.11 Jarðsig á Sandskeiði á Eskifirði1512093
    12. 1.12 Niðurlagning Slysavarnardeildarinnar Ársólar - fjárframlög til bæjarins1703069
    13. 1.13 Samgönguáætlun 20171703041
    14. 1.14 Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf - fundarboð1703057
    15. 1.15 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20171702019
    16. 1.16 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1701703001F
    17. 1.17 Fræðslunefnd - 381703003F
  2. 2. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 170

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson,Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason, Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 6.mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 10.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði - beiðni um umsögn1609087
    2. 2.2 10.000 tonna laxeldi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa - beiðni um umsögn1609085
    3. 2.3 Flokkunartunnur í miðbæjarkjarna1702037
    4. 2.4 Margnota pokar1610157
    5. 2.5 755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I11611050
    6. 2.6 Skipulagslýsing Ketilsstaða - Gistiþjónusta, ósk um umsögn.1702128
    7. 2.7 755 - Deiliskipulag Saxa1208097
    8. 2.8 735 Bleiksárhlíð 56 - Skipulagsmál1703017
    9. 2.9 735 - Strandgata 86b - byggingarleyfi, breyting inni1702140
    10. 2.10 755 Fjaðrarbraut 40 - byggingarleyfi - breyting utanhúss1703012
    11. 2.11 750 Hafnargata 3A - byggingarleyfi - eldsneytisgeyma1702135
    12. 2.12 735 Strandgata 26 - byggingarleyfi - breyting á notkun húsnæðis1702213
    13. 2.13 740 Mýrargötu 10 - byggingarleyfi - breyting á húsnæðis1702224
    14. 2.14 735 Strandgata 12 - stálgrindarhús - byggingarleyfi1701186
    15. 2.15 Ný reglugerð um heimagistingu, gististaði og skemmtanahald - verkferlar ofl.1611016
    16. 2.16 Lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð - nr. 325/19991602082
    17. 2.17 750 Skólavegur 12 -óleyfisframkvæmd1701090
    18. 2.18 750 Hlíðargata 60 - Beiðni um umsögn, vinnuslys1701037
    19. 2.19 Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar 20161604018
    20. 2.21 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir1602108
    21. 2.21 740 Kirkjuból - kæra varðaðandi ákvörðun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar vegna stækkunar reits O5 á Kirkjubólseyrum1602108
    22. 2.22 740 Urðarbotnar, Nes- og Bakkagil - ofanflóðavarnir1606084
    23. 2.23 Norðfjarðarflugvöllur - klæðning1410115
    24. 2.24 Nesbakki 19-21 - verðmat á íbúð1611125
    25. 2.25 Skýrsla - Lífrænn úrgangur til landgræðslu1702093
    26. 2.26 16 ára eingreiðslumark niðurgreiðslna til húshitunar1702090
  3. 3. Fræðslunefnd - 38

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 8.mars s.l staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Heilsueflandi samfélag - Fjarðabyggð1604052
    2. 3.2 Endurskoðun samninga við Fjölís1702057
    3. 3.3 Styrktarsjóður EBÍ 20171702216
    4. 3.4 Innleiðing á nýjum námsmatskvarða við lok grunnskóla1702089
    5. 3.5 Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS1701123
    6. 3.6 Kennslutímamagn 2017-20181702065
    7. 3.7 Vinna við forvarnir fyrir árið 20171611121
    8. 3.8 Útboð á skólamáltíðum í grunnskólum 20171612093
  4. 4. 755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I1

    Mál 1611050 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu að breytingu á aðalskipulagi úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar til bæjarstjórnar tillögu um auglýsingu breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I1. Tillagan er sett fram á uppdrætti og greinargerð dagsett 15.febrúar 2017. Tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa breytingu á aðalskipulagi.

  5. 5. Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði

    Mál 1603023 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi kaupsamningi úr hlaði.

    Til máls tók Jens Garðar Helgason.

    Framlagður kaupsamningur um Melgerði 13 á Reyðarfirði við Eik fasteignafélag í samræmi við samþykkt bæjarráðs frá 16.janúar 2017 um nýtingu kaupréttar að Melgerði 13 ásamt minnisblaði fjármálastjóra um hagkvæmni kaupanna.

    Bæjarstjórn samþykkir kaupsamning um Melgerði 13 á Reyðarfirði með 9 atkvæðum og felur bæjarstjóra undirritun skjala tengdum kaupunum.

  6. 6. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES

    Mál 1411143 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi samningum úr hlaði.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Framlögð drög samnings við Fjarskiptasjóð um styrkúthlutun á árinu 2017 ásamt samstarfssamningi við Orkufjarskipti vegna lagningar ljósleiðara merktur TRÚNAÐARMÁL.

    Bæjarstjórn samþykkir samninga með 9 atkvæðum og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.

  7. 7. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 2

    Mál 1703072 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka 2 úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Viðauki 2 við fjárhagsáætlun ársins 2017 um nýtingu kaupréttar að leigueign Eik fasteignafélags hf. að Melgerði 13 Reyðarfirði og samnings við Orkufjarskipti um lagningu ljósleiðara á milli Reyðarfjarðar og Stöðvarfjarðar

    a)

    Nýting kaupréttar að Melgerði 13 á Reyðarfirði

    Áhrifin af kaupsamningnum um eignina eru þau að fjárfestingar ársins í Eignasjóði hækka um 46 m.kr., skuldir vegna rekstrarleigueigna lækka um 76 m.kr. en lántökur ársins um 91. m.kr. Hækkun langtímaskulda nemur einungis muninum á stöðu leiguskuldbindingarinnar og lántökunnar. Í fjárhagsáætlun ársins 2017 var gert ráð fyrir nýrri lántöku að upphæð 271 m.kr í A hluta. Afborganir af langtímalánum og rekstrarleiguskuldum munu hækka um 76 m.kr. á árinu og nema um 402 m.kr. 2017 í A hluta í stað 326 m.kr. Lántökur ársins hækka á sama hátt um 91 m.kr. og verða 362 m.kr. í A hluta. Hér er fyrst og fremst um að ræða áhrifa á efnahagsreikning Fjarðabyggðar en ekki rekstur.

    Hér er því lagt til að eftirfarandi breyting verði samþykkt á fjárhagsáætlun Eingasjóðs og samstæðu Fjarðabyggðar fyrir árið 2017:

    o

    Leiguskuldir í efnahagsreikningi lækki um kr. 76.000.000 á árinu 2017 og afborganir leiguskulda (langtímalána) ársins í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.

    o

    Skuldir við lánastofnanir í efnahagsreikningi hækki um kr. 91.000.000 á árinu 2017 og tekin ný langtímalán í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.

    o

    Fjárfestingar ársins í Eignasjóði hækki sem nemur bókfærðu verði eignarinnar og kaupverði hennar eða um kr. 46.000.000 og verði samtals kr. 301.000.000 í Eignasjóði.

    Áhrifin af kaupum á Melgerði 13 og breyting á skuldahlið efnahagsreiknings Fjarðabyggðar mun ekki hafa áhrif á sjóðsstreymi Eignasjóðs eða samstæðu Fjarðabyggðar og krefst því ekki ákvörðunar um aðra fjármögnun en hér hefur verið gerð grein fyrir.

    b)

    Samningur við Orkufjarskipti um lagningu ljósleiðara í máli nr. 1411143

    Samkvæmt samningi við Orkufjarskipti er gert ráð fyrir lagningu ljósleiðara frá Heyklif í Stöðvarfirði til Áreyja í Reyðarfirði, á grunni verkefnisins Ísland ljóstengt 2017. Gert er ráð fyrir að nettó kostnaður Fjarðabyggðar vegna verkefnisins verði um 15,7 m.kr. með virðisaukaskatti.

    Hér er því lagt til að eftirfarandi breyting verði samþykkt á fjárhagsáætlun Aðalsjóðs í málaflokki 13 Atvinnumál:

    o

    Styrkir og aðrar tekjur í málaflokknum hækki um kr. 12.103.000 og verði samtals kr. 15.702.000

    o

    Rekstrarkostnaður í málaflokknum hækki um kr. 28.040.000 og verði samtals kr. 84.847.000.

    o

    Nettó útgjöld í málaflokki og deild 13 Atvinnumál hækka því um kr. 15.937.000 og verði samtals kr. 69.144.000

    Lagt er til á grunvelli ofangreindara tillagna fyrir bæjarráði að rekstrarkostnaður í Aðalsjóði hækki um 15.937 þús. í fjárhagsáætlun ársins 2017 og þessi aukni rekstrarkostnaður verði fjarmagnaður af eigin fé Aðalsjóðs. Jafnframt hækka fjárfestingar Eignasjóðs um 46.000 þús.kr. á árinu, lántökur hækki um 91.000 þús.kr. og afborganir leiguskuldbindinga hækki um 76.000 þús.kr. en hafi ekki önnur áhrif á sjóðsstreymi samstæðu Fjarðabyggðar.

    Handbært fé Aðalsjóðs um lækka um 15.937 þús. krónur til samræmis við ofangreint og verða kr. 148.266 þús. krónur í árslok 2017.

    Viðauki 2 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017 um nýtingu kaupréttar að Melgerði 13 og samning við Orkufjarskipti samþykktur með 9 atkvæðum.

  8. 8. Makaskipti Nesbakka 19-21 og Hafnarbrautar 17 í Neskaupstað

    Mál 1611125 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi makaskiptasamningi og kaupsamningi úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Um er að ræða makaskipti á íbúð í Nesbakka 19, fastanúmer 216-9544, í eigu Fjarðabyggðar og hins vegar fasteignin að Hafnarbraut 17, fastanúmer 216-9127. Jafnframt er lagður fram samningur við Nestak um kaup á fasteigninni að Hafnarbraut 17. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarráð vísa staðfestingu makaskiptasamnings og sölu Hafnarbrautar 17 til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Bæjarstjórn samþykkir makaskiptasamning og kaupsamning með 9 atkvæðum og felur bæjarstjóra undirritun skjala vegna viðskiptanna.

  9. 9. Öldungaráð

    Mál 1610001 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi tilnefningu úr hlaði.

    Bæjarstjórn samþykkir að fulltrúar í öldungaráð verði Jens Garðar Helgason og Einar Már Sigurðarson og til vara Eydís Ásbjörnsdóttir og Hulda Sigrún Guðmundsdóttir.