Heilsueflandi samfélag - Fjarðabyggð
Mál 1604052 Fyrst á dagskrá 10. október 2016, síðast 16. mars 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 492 liður 12
Frá íþrótta- og tómstundanefnd 6. október s.l.
Samstarfssamningur milli Fjarðabyggðar og Embættis landlæknis um þróunarverkefnið "Heilsueflandi samfélag". Verkefnið miðar að því að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa Fjarðabyggðar með markvissum þverfaglegum heilsueflingaraðgerðum. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að skipaður verði þverfaglegur stýrihópur um verkefnið, að samningurinn verði samþykktur og vísar honum til bæjarráðs til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leiti en felur íþrótta- og tómstundafulltrúa nánari útfærslu í tengslum við hann. Jafnframt er íþrótta- og tómstundanefnd falið að skipa stýrihópinn. Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn.
-
Bæjarstjórn, fundur 208 liður 2.12
Fundargerðin „Bæjarráð - 492“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2017
Fræðslunefnd, fundur 38 liður 1
Landlæknir fyrir hönd Embættis landlæknis og bæjarstóri Fjarðabyggðar fyrir hönd sveitarfélagsins Fjarðabyggðar skrifuðu í dag undir samstarfssamning um þróunarverkefnið "heilsueflandi samfélag" í Fjarðabyggð. Verkefnið miðar að því að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa Fjarðabyggðar með markvissum þverfaglegum heilsueflingaraðgerðum. Nánar má lesa um markmið verkefnisins á heimasíðu Fjarðabyggðar. Fræðslunefnd fagnar framtakinu.
-
Bæjarstjórn, fundur 219 liður 3.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 38“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.