755 Fjaðrarbraut 40 - byggingarleyfi - breyting utanhúss
Mál 1703012 Fyrst á dagskrá 6. mars 2017, síðast 16. mars 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 170 liður 10
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Þorsteins Erlingssonar, dagsett 1. mars 2017, þar sem sótt er um leyfi til að grafa frá veggjum, drena og einangra ásamt því að klæða að utan 1. áfanga húss hans að Fjarðarbraut 40 á Stöðvarfirði. Jafnframt er óskað eftir afstöðu nefndarinnar varðandi hækkun hússins um 2 hæðir fyrir 40 herbergja gistirými með veitingasal á 2 hæðum, bílakjallara, lager, litla verslun og þvottahús á hæðinni sem fyrir er. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 3. mars 2017 vegna skipulagsmála við Fjarðarbraut 40 á Stöðvarfirð. Fjarðarbraut 40 er innan athafnasvæðis samkvæmt aðalskipulagi. Ekki er gert ráð fyrir frekari uppbyggingu innan lóðar samkvæmt deiliskipulagi.
Lesa alla bókunina (44 orð til viðbótar)
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir einangrun- og klæðningu veggja og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir. Nefndin telur að stækkun, hússins og rekstur gistingar og veitingasalar samræmist ekki skipulagsskilmálum lóðarinnar eins og þeir eru í dag.
-
Bæjarstjórn, fundur 219 liður 2.10
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 170“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.