Samgönguáætlun 2017
Mál 1703041 Fyrst á dagskrá 13. mars 2017, síðast 16. mars 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 512 liður 13
Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur ályktað og harmar og lýsir yfir miklum áhyggjum af ófjármagnaðri samgönguáætlun Alþingis. Fyrst og fremst þarf að horfa til öryggis vegfaranda, en alkunna er að mikil og vaxandi umferð er um allt land um þessar mundir vegna aukins ferðamannastraums til landsins og aukinna flutninga á vegum.
Í þessu efni er vert að nefna vegarkafla á þjóðvegi 1 sem ekki hafa verið malbikaðir, en vegarkaflinn um Berufjörð er á köflum varhugaverður og nánast ófær við ákveðin skilyrði.
Lesa alla bókunina (82 orð til viðbótar)
Þá ber einnig að nefna veginn til Borgarfjarðar Eystri, en mikilvægi vegarins hefur aukist á undanförnum árum vegna aukinnar umferðar til staðarins. Þá vill bæjarráð benda á að eitt af sex stefnumálum Sambands sveitarfélaga á Austurlandi leggur áherslu á lagfæringu þeirra vegarkafla sem ekki höfðu bundið slitlag.
Eru þingmenn hér með hvattir til að leita leiða til þess að koma auknu fjármagni til vegakerfis landsins, m.a. með öryggisjónarmið að leiðarljósi sem og að horfa til langtímasjónarmiða við uppbyggingu innviða landsins í heild.
-
Bæjarstjórn, fundur 219 liður 1.13
Fundargerðin „Bæjarráð - 512“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.