Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 521

15. maí 2017, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 223 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 15. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2017 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1705109 Allur ferill málsins

    Framlagt yfirlit sem trúnaðarmál, yfir rekstur og fjárfestingar fyrir janúar - mars 2017 og skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - apríl 2017.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 4

    Mál 1705105 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að viðauka 4 við fjárhagsáætlun ársins 2017 vegna breytinga í sorpmálum, endurbóta á Grunnskóla Fáksrúðsfjarðar og samþykkt á ársreikningi ársins 2016.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Framvirkur gjaldmiðilssamningur vegna samnings við Jan Del Nul

    Mál 1705044 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga um gerð framvirks gjaldmiðlaskiptasamning við Íslandsbanka vegna verksamnings um Mjóeyrarhöfn við Jan Del Nul.

    Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra og felur bæjarstjóra undirritun gjaldmiðlaskiptasamnings og gagna honum tengdum.

  4. 4. Blómsturvellir 26-32 - sala (leikskólinn Sólvellir)

    Mál 1703037 Allur ferill málsins

    Tilboð voru opnuð vegna sölu Blómsturvalla 26-32 í Neskaupstað föstudaginn 12.maí.

    Eitt tilboð barst frá Leigufélaginu Stöplum að fjárhæð 10 milljónir kr.

    Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

  5. 5. Akstur til og frá athafnasvæðinu að Hrauni kl. 20:00

    Mál 1607068 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um reynslu af akstri að og frá Hrauni í Reyðarfirði kl 20:00 sem var ákveðið sem tilraunaverkefni til og með 31. maí.

    Máli frestað til næsta fundar bæjarráðs. Sviðsstjóra falið að vinna að málinu milli funda.

  6. 6. Fyrirhuguð virðisaukaskattshækkun á ferðaþjónustuna og áhugi ráðherra á Austurlandi

    Mál 1705092 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Ívars Ingimarssonar er varðar mótvægisaðgerðir vegna fyrirhugaðrar hækkunar á virðisaukaskatti í ferðaþjónustu ásamt umsagnar Tanna Travel ehf. vegna frumvarpsins. Í tengslum við málið samþykkir bæjarráð eftirfarandi ályktun.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar hvetur ríkisstjórn Íslands til að finna ásættanlega lausn, í samráði við hagsmunaaðila, varðandi hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna. Ferðaþjónusta er ekki heilsárs atvinnugrein í Fjarðabyggð a.m.k. ekki með sama hætti og á höfuðborgarsvæðinu og nærliggjandi svæðum. Því er mikilvægt að öll skref í átt að auknum álögum séu stigin í samráði við greinina með þeim aðlögunartíma sem til þarf. Styrking krónunnar er orðið áhyggjuefni fyrir allar útflutningsgreinar á Íslandi og hvetur bæjarráð Fjarðabyggðar ríkisstjórn Íslands að beita þeim verkfærum sem hún og Seðlabanki Íslands hafa, til að stemma stigu við þeim styrkingarfasa sem íslenska krónan er í.

  7. 7. Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Mál 1410115 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um stöðu framkvæmda við klæðningu Norðfjarðarflugvallar.

    Sviðsstjóra falið að vinna áfram að málinu.

  8. 8. Útboð á viðhaldsmálum grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

    Mál 1703119 Allur ferill málsins

    Lagður fram verksamningur við Launafl um endurbætur á Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði að fjárhæð 68,6 milljónir kr.

    Bæjarráð samþykkir verksamning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

    Jafnframt er samningi vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til yfirferðar.

  9. 9. Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS

    Mál 1701123 Allur ferill málsins

    Lagðar fram úrbótaáætlanir grunnskólanna í Fjarðabyggð í tengslum við Bókun 1 (2016) í kjarasamning KÍ vegna FG sem gildir frá 1. desember 2016 til 30. nóvember 2017.

    Viðhaldsmálum og endurbótum á húsnæði vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til skoðunar í tengslum við viðhaldsáætlun ársins 2017. Tekið fyrir að nýju í bæjarráði að aflokinni yfirferð nefndarinnar.

  10. 10. Málþing um skipulag haf- og strandsvæða 17. maí 2017

    Mál 1705097 Allur ferill málsins

    Samband sveitarfélaga á Austurlandi og Samtök sjávarútvegssveitarfélaga standa fyrir málþingi um skipulag haf- og strandsvæða miðvikudaginn 17. maí nk. kl. 9.15 í Þórðarbúð, Austurvegi á Reyðarfirði. Umhverfis- og auðlindaráðherra mun ávarpa málþingið og taka þátt í pallborðsumræðum.

    Framlagt og kynnt.

  11. 11. Húsvarsla í Valhöll Eskifirði

    Mál 1705102 Allur ferill málsins

    Bréf Íbúsamtaka Eskifjarðar þar sem óskað er eftir viðræðum um húsvörslu í Félagsheimilinu Valhöll og stofnun Hollvinasamtaka. Félag eldri borgara á Eskifirði hefur sagt samningi lausum.

    Forstöðumanni stjórnsýslu falið að ræða við bréfritara.

  12. 12. Aðalfundur SSA 2017

    Mál 1705057 Allur ferill málsins

    Óskað er eftir tillögum frá sveitarstjórnum, starfsmönnum sveitarfélaga og frá Austurbrú í tengslum við aðalfundar SSA sem fram fer dagana 29. til 30. september nk. Bæjarstjóra falið að yfirfara málaflokka sveitarfélagsins.

  13. 13. Hafnarstjórn - 179

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 179 frá 9. maí 2017, lögð fram til kynningar.

  14. 14. Fræðslunefnd - 40

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 40 frá 10.maí 2017, lögð fram til kynningar.

  15. 15. Félagsmálanefnd - 94

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 94 frá 9.maí 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 15.9 Fjárhagsaðstoð1703101