Fyrirhuguð virðisaukaskattshækkun á ferðaþjónustuna og áhugi ráðherra á Austurlandi
Mál 1705092 Fyrst á dagskrá 15. maí 2017, síðast 22. júní 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 521 liður 6
Framlagt bréf Ívars Ingimarssonar er varðar mótvægisaðgerðir vegna fyrirhugaðrar hækkunar á virðisaukaskatti í ferðaþjónustu ásamt umsagnar Tanna Travel ehf. vegna frumvarpsins. Í tengslum við málið samþykkir bæjarráð eftirfarandi ályktun.
Lesa alla bókunina (98 orð til viðbótar)
Bæjarráð Fjarðabyggðar hvetur ríkisstjórn Íslands til að finna ásættanlega lausn, í samráði við hagsmunaaðila, varðandi hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna. Ferðaþjónusta er ekki heilsárs atvinnugrein í Fjarðabyggð a.m.k. ekki með sama hætti og á höfuðborgarsvæðinu og nærliggjandi svæðum. Því er mikilvægt að öll skref í átt að auknum álögum séu stigin í samráði við greinina með þeim aðlögunartíma sem til þarf. Styrking krónunnar er orðið áhyggjuefni fyrir allar útflutningsgreinar á Íslandi og hvetur bæjarráð Fjarðabyggðar ríkisstjórn Íslands að beita þeim verkfærum sem hún og Seðlabanki Íslands hafa, til að stemma stigu við þeim styrkingarfasa sem íslenska krónan er í.
-
Bæjarstjórn, fundur 223 liður 2.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 521“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 524 liður 15
Lagður fram tölvupóstur framkvæmdastjóra Austurbrúar er varðar fundi á Egilsstöðum í tengslum við breytingar á virðisaukaskattskerfinu, með ráðherrum ferða- og fjármála sem haldinn var 6. júní og framkvæmdastjóra Samtaka aðila í Ferðaþjónustu ( SAF ) sem fyrirhugaður er 13.júní. Bæjarstjóri sótti fund 6.júní. Vísað til forstöðumanns stjórnsýslu.
-
Bæjarstjórn, fundur 225 liður 1.15
Fundargerðin „Bæjarráð - 524“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.