Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 223

18. maí 2017, kl. 16:00 til 17:30, Sólbrekku í Mjóafirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 520

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Pálína Margeirsdóttir, Dýrunn Pála Skaptadóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir,Sævar Guðjónsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 8. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Almenningssamgöngur 20161602039
    2. 1.2 Leigulönd í Fjarðabyggð1610078
    3. 1.3 Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar1606041
    4. 1.4 434.mál til umsagnar tillöga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017 - 20211705014
    5. 1.5 435.mál til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði1705017
    6. 1.6 375.mál til umsagnar frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn),1705025
    7. 1.7 439.mál til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál),1705029
    8. 1.8 438. mál til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir,1705030
    9. 1.9 Ársreikningur Búseta 20161705039
    10. 1.10 Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 20161705041
    11. 1.11 Ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar 20161705042
    12. 1.12 Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns 20161705043
    13. 1.13 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20171702075
    14. 1.14 Fullnaðarafgreiðslur embættismanna og prókúra 20171702120
    15. 1.15 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1751704013F
    16. 1.16 Íþrótta- og tómstundanefnd - 341704011F
  2. 2. Bæjarráð - 521

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 15. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Rekstur málaflokka 2017 - TRÚNAÐARMÁL1705109
    2. 2.2 Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 41705105
    3. 2.3 Framvirkur gjaldmiðilssamningur vegna samnings við Jan Del Nul1705044
    4. 2.4 Blómsturvellir 26-32 - sala (leikskólinn Sólvellir)1703037
    5. 2.5 Akstur til og frá athafnasvæðinu að Hrauni kl. 20:001607068
    6. 2.6 Fyrirhuguð virðisaukaskattshækkun á ferðaþjónustuna og áhugi ráðherra á Austurlandi1705092
    7. 2.7 Norðfjarðarflugvöllur - klæðning1410115
    8. 2.8 Útboð á viðhaldsmálum grunnskóla Fáskrúðsfjarðar1703119
    9. 2.9 Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS1701123
    10. 2.10 Málþing um skipulag haf- og strandsvæða 17. maí 20171705097
    11. 2.11 Húsvarsla í Valhöll Eskifirði1705102
    12. 2.12 Aðalfundur SSA 20171705057
    13. 2.13 Hafnarstjórn - 1791705004F
    14. 2.14 Fræðslunefnd - 401705005F
    15. 2.15 Félagsmálanefnd - 941705003F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 175

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 2. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 87.mál umsagnar tillögu til þingsályktunar um skipun starfshóps til að endurbæta löggjöf um vernd,velferð og veiðar villtra fugla og spendýra1704056
    2. 3.2 Leigulönd í Fjarðabyggð1610078
    3. 3.3 Umhverfismál 20171610080
    4. 3.4 735 Strandgata 77b - breyting á húsnæði1704108
    5. 3.5 Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL1611104
    6. 3.6 740 Urðarbotnar, Nes- og Bakkagil - ofanflóðavarnir1606084
    7. 3.7 Norðfjarðargöng - undirbúningur 2012, aðalmál1207029
    8. 3.8 Egilsbúð - viðhaldsmál1601270
    9. 3.9 Eignarsjóður viðhaldsmál 20171703079
    10. 3.10 Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar1606041
  4. 4. Hafnarstjórn - 179

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Sævar Guðjónsson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 9. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Fundargerðir Hafnasamband Íslands 20171701008
    2. 4.2 Samráðshópur Fiskistofu og Hafnasambandsins1705026
    3. 4.3 Ársreikningur Hafnasambands Íslands 20161705027
    4. 4.4 Uppsögn á starfi atvinnu- og þróunarstjóri1704115
    5. 4.5 Stefnumótun í fiskeldismálum1703120
    6. 4.6 Afmörkun hafnasvæða - réttindi og skyldur1702078
    7. 4.7 Kynnisferð til Noregs vegna fiskeldismála1704134
    8. 4.8 Efnistaka í sjó, undirbúningsvinna - Reyðarfjörður og Norðfjarðarflói1703139
    9. 4.9 Aðstöðuhús við Mjóeyrarhöfn1704021
    10. 4.10 Beiðni um styrk vegna flotbryggju við Sæbergsbryggju á Eskifirði1704090
    11. 4.11 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Kvasov Vyacheslav skipstjóra á Marmindoro1704097
    12. 4.12 Norðfjörður - umhverfisfrágangur við smábátahöfn1412034
    13. 4.13 Styrkumsókn v/sjávarútvegsskólans 20171704105
  5. 5. Fræðslunefnd - 40

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Elvar Jónsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Valdimar O Hermannsson.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 10. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Fyrirkomulag á lokun og opnun leikskóla í tengslum við sumarlokun1705053
    2. 5.2 Ungt fólk - 8.-10.bekkur - vímuefnanotkun1704098
    3. 5.3 Úthlutun úr Endurmennturnarsjóði grunnskóla 20171704093
    4. 5.4 Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS1701123
  6. 6. Íþrótta- og tómstundanefnd - 34

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 27. apríl s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Heimsókn í íþrótta- og tómstundamannivrki á Eskfirði
    2. 6.2 Ungt fólk og lýðræði 2017
    3. 6.3 Heilsueflandi samfélag - Fjarðabyggð
    4. 6.4 Úthlutunarreglur íþróttastyrkja uppfærðar 2017
  7. 7. Félagsmálanefnd - 94

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Valdimar O Hermannsson.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 9. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 7.1 Húsnæðisáætlun fyrir allt Austurland1703205
    2. 7.2 Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL1611104
    3. 7.3 434.mál til umsagnar tillöga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-20211705014
    4. 7.4 436. mál til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna1705020
    5. 7.5 439.mál til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál),1705029
    6. 7.6 438. mál til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir1705030
    7. 7.7 Ungt fólk - 8.-10.bekkur - vímuefnanotkun1704098
    8. 7.8 Málefni flóttafólks1406154
    9. 7.9 Fjárhagsaðstoð1703101
    10. 7.10 Samningur um félagsstarf eldri borgara í Neskaupstað1606028
  8. 8. Lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð - nr. 325/1999

    Mál 1602082 Allur ferill málsins

    Síðari umræða um drög að lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð.

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi drögum úr hlaði.

    Til máls tóku: Sævar Guðjónsson, Jón Björn Hákonarson.

    Bæjarstjórn samþykkir lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð með 9 atkvæðum.

  9. 9. Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1604018 Allur ferill málsins

    Síðari umræða um endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar.

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi drögum að endurskoðun á umferðarsamþykkt úr hlaði.

    Til máls tóku: Sævar Guðjónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.

    Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaða umferðarsamþykkt með 9 atkvæðum.

  10. 10. Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar

    Mál 1606041 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.

    Framlögð drög að samningi við Íslenska Gámafélagið um jarðgerð og hirðu lífræns úrgangs. Í ágúst nk. verður bætt við brúnni tunnu og verður farið í sérstakt kynningarátak því tengdu. Jarðgerð fer fram á athafnasvæði verktaka á Reyðarfirði.

    Til máls tóku: Sævar Guðjónsson, Jón Björn Hákonarson, Dýrunn Pála Skaftadóttir.

    Bæjarstjórn samþykkir samning með 9 atkvæðum og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  11. 11. Fullnaðarafgreiðslur embættismanna og prókúra 2017

    Mál 1702120 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.

    Framlagðar breytingar á reglum um fullnaðarafgreiðslur embættismanna.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir reglur með 9 atkvæðum.

  12. 12. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 4

    Mál 1705105 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi viðauka 4 úr hlaði.

    Framlögð tillaga að viðauka 4 við fjárhagsáætlun ársins 2017 vegna breytinga í sorpmálum, endurbóta á Grunnskóla Fáksrúðsfjarðar og samþykkt á ársreikningi ársins 2016.

    Lagt er til við bæjarstjórn að hún samþykkja samhliða viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2017 sem hér segir:

    a)

    Kostnaður Sorpmiðstöðvarinnar á árinu 2017. Samtals er kostnaðaraukinn við að jarðgera og hirða lífrænan úrgang uppá um 11,3 m.kr. á árinu 2017 sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins 2017 í Sorpmiðstöð Fjarðabyggðar.

    b)

    Endurbætur á Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar gera ráð fyrir að kostnaður nemi um 69 m.kr. Í fjárhagsáætlun Eignasjóðs fyrir árið 2017 er gert ráð fyrir að verja 55 m.kr. til fjárfestinga í Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði. Samtals er hér því um kostnaðarauka uppá um 14 m.kr. á árinu 2017 sem ekki var gert ráð fyrir í fjárfestingum fjárhagsáætlun ársins 2017 í Eignasjóði.

    c)

    Samkvæmt samþykkt ársreiknings Fjarðabyggðar, Eignasjóðs, um fjárfestingar á árinu 2016 er ekki lengur til staðar fjárfestingarþörf í nýju hjúkrunarheimili á Eskifirði. Samtals er hér því um kostnaðarlækkun uppá um 60 m.kr. á árinu 2017.

    Við þessa samþykkt mun því fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 breytast sem hér segir:

    Rekstur Sorpmiðstöðvarinnar í málaflokki og deild 63-100 hækkar sem nemur kr. 11.300.000 fyrir árið 2017 og nemi í heildina 86.522.331. Rekstrarniðurstaða Soprmiðstöðvarinnar í málaflokki 63 fer úr afgangi að upphæð kr. 264.461 í halla að upphæð kr. 11.035.539.

    Fjárfestingar Eignasjóðs í málaflokki og deild 32-010 hækka sem nemur kr. 14.000.000 fyrir árið 2017 vegna Skólamiðstöðvarinnar á Fáskrúðsfirði en lækka sem nemur áætlaðri fjárhæð til hjúkrunarheimilsins Hulduhlíðar og nema í heildina kr. 204.000.000.

    Hér með er jafnframt lagt til að þessi kostnaðarauki verði fjármagnaður af eigin fé Sorpmiðstöðvar Fjarðabyggðar og eigin fé Eignasjóðs með tilheyrandi lækkun eða hækkun viðskiptastöðu þessara stofnunar og undirfyrirtækis við Aðalsjóð.

    Handbært fé Aðalsjóðs mun lækka um kr. 25.300 þúsund krónur til samræmis við ofangreint og verða 108.838 þús. króna í árslok 2017. Engin breyting verður á áætlun um handbært fé vegna tilflutningi á fjárfestingu í hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð, því upphæðin var greidd á árinu 2017, þó hún hafi verið kostnaðarfærð á árinu 2016.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka 4 við fjárhagsáætlun ársins 2017.

  13. 13. 755 - Deiliskipulag Söxu

    Mál 1208097 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar til bæjarstjórnar tillögu að deiliskipulagi Söxu við Stöðvarfjörð til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð dags. 1. janúar 2017 og felur meðal annars í sér að gert er ráð fyrir áningastöðum, bílastæðum og göngustígum til að auka aðgengi og öryggi við sjávarhverinn Söxu. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að tillaga að deiliskipulagi fyrir Söxu við Stöðvarfjörð verði auglýst.

  14. 14. Launakjör kjörinna fulltrúa

    Mál 1306082 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að fella úr gildi frá 1. maí 2017 tímabundna ákvörðun um launakjör kjörinna fulltrúa sem ákveðin var á fundi bæjarstjórnar þann 1. desember 2016.