Ungt fólk - 8.-10.bekkur - vímuefnanotkun
Mál 1704098 Fyrst á dagskrá 9. maí 2017, síðast 18. maí 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd, Félagsmálanefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Félagsmálanefnd, fundur 94 liður 7
Fyrir liggur skýrsla frá Rannsóknum og greiningu um vímuefnanotkun ungs fólks í Fjarðabyggð. Skýrslan byggir á könnun sem lögð var fyrir alla nemendur í 8. til 10. bekk á Íslandi í febrúarmánuði árið 2017. Forvarnarstarf meðal unglinga í grunnskólum hefur verið mjög öflugt undanfarin ár og er hið svokallaða „íslenska módel“ nú notað sem fyrirmynd starfs víðs vegar í Evrópu. Fjarðabyggð hefur um 10 ára skeið verið með samning við Rannsóknir og greiningu um að taka saman sérstaka skýrslu fyrir sveitarfélagið og aðstoða við kynningu á niðurstöðum. Þriðjudaginn 25. apríl voru niðurstöður kynntar á opnum fundi um vímuefnamál í Grunnskólanum á Reyðarfirði. Niðurstöðurnar sýndu að ungmennin okkar eru áfram afhuga vímuefnanotkun. Tóbaks- og áfengisnotkun og notkun á ólöglegum vímuefnum er hverfandi. Eina vímuefnið sem fer uppá við í notkun er rafrettan, en í Fjarðabyggð eins og á landinu öllu eru ungmenni að fikta við hana og þar er mikilvægt að spyrna við fótum. Eftirtektarvert er að ungmennin segja afstöðu foreldra mjög skýra gegn allri notkun vímuefna, en skýr afstaða og stuðningur foreldra við ungmennin skiptir gríðarlegu máli. Félagsmálanefnd lýsir ánægju með afstöðu unga fólksins til vímuefnanotkunar.
-
Fræðslunefnd, fundur 40 liður 2
Fyrir liggur skýrsla frá Rannsóknum og greiningu um vímuefnanotkun ungs fólks í Fjarðabyggð. Skýrslan byggir á könnun sem lögð var fyrir alla nemendur í 8. til 10. bekk á Íslandi í febrúarmánuði árið 2017. Forvarnarstarf meðal unglinga í grunnskólum hefur verið mjög öflugt undanfarin ár og er hið svokallaða „íslenska módel“ nú notað sem fyrirmynd starfs víðs vegar í Evrópu. Fjarðabyggð hefur um 10 ára skeið verið með samning við Rannsóknir og greiningu um að taka saman sérstaka skýrslu fyrir sveitarfélagið og aðstoða við kynningu á niðurstöðum. Þriðjudaginn 25. apríl voru niðurstöður kynntar á opnum fundi um vímuefnamál í Grunnskólanum á Reyðarfirði. Niðurstöðurnar sýndu að ungmennin okkar eru áfram afhuga vímuefnanotkun. Tóbaks- og áfengisnotkun og notkun á ólöglegum vímuefnum er hverfandi. Eina vímuefnið sem fer uppá við í notkun er raf-sígarettan (rafrettan), en í Fjarðabyggð eins og á landinu öllu eru ungmenni að fikta við hana og þar er mikilvægt að spyrna við fótum. Eftirtektarvert er að ungmennin segja afstöðu foreldra mjög skýra gegn allri notkun vímuefna, en skýr afstaða og stuðningur foreldra við ungmennin skiptir gríðarlegu máli. Fræðslunefnd lýsir ánægju með afstöðu unga fólksins til vímuefnanotkunar.
-
Bæjarstjórn, fundur 223 liður 5.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 40“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 223 liður 7.7
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 94“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.