Fræðslunefnd, fundur 40
10. maí 2017, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (15)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Óskar Þór Guðmundsson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Guðlaug Dana Andrésdóttir, varaformaður
Starfsmenn
- Guðmann Þorvaldsson, áheyrnarfulltrúi
- Halla Höskuldsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Anna Margrét Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi
- Þóroddur Helgason, áheyrnarfulltrúi
- Andrea Borgþórsdóttir, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Jens Garðar Helgason, embættismaður
- Jón Björn Hákonarson, embættismaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, embættismaður
- Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 521 liður 14
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 40 frá 10.maí 2017, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 223 liður 5
Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Elvar Jónsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Valdimar O Hermannsson.
Fundargerð fræðslunefndar frá 10. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fyrirkomulag á lokun og opnun leikskóla í tengslum við sumarlokun
Mál 1705053 Allur ferill málsins
Fyrir liggur bréf frá leikskólastjórum þar sem rætt er um fyirkomulag á lokun og opnun leikskóla í tengslum við sumarlokun leikskóla. Æskilegasta formið að þeirra mati er að leikskólinn verði opinn fram að hádegi síðasta dag fyrir sumarlokun og leikskólinn opni aftur eftir sumarlokun í hádeginu. Ósk þeirra er að slíkt fyrirkomulag verði tekið upp sumarið 2017. Fræðslunefnd getur ekki orðið við beiðninni þar sem nú þegar hefur verið auglýst sumarlokun og foreldrar ganga út frá þeim dögum sem auglýstir hafa verið. Fræðslunefnd telur rétt að ræða í haust um fyrirkomulag sumarlokunar leikskóla við fulltrúa foreldrafélaga, atvinnulífs og stjórnenda leikskóla.
-
2. Ungt fólk - 8.-10.bekkur - vímuefnanotkun
Mál 1704098 Allur ferill málsins
Fyrir liggur skýrsla frá Rannsóknum og greiningu um vímuefnanotkun ungs fólks í Fjarðabyggð. Skýrslan byggir á könnun sem lögð var fyrir alla nemendur í 8. til 10. bekk á Íslandi í febrúarmánuði árið 2017. Forvarnarstarf meðal unglinga í grunnskólum hefur verið mjög öflugt undanfarin ár og er hið svokallaða „íslenska módel“ nú notað sem fyrirmynd starfs víðs vegar í Evrópu. Fjarðabyggð hefur um 10 ára skeið verið með samning við Rannsóknir og greiningu um að taka saman sérstaka skýrslu fyrir sveitarfélagið og aðstoða við kynningu á niðurstöðum. Þriðjudaginn 25. apríl voru niðurstöður kynntar á opnum fundi um vímuefnamál í Grunnskólanum á Reyðarfirði. Niðurstöðurnar sýndu að ungmennin okkar eru áfram afhuga vímuefnanotkun. Tóbaks- og áfengisnotkun og notkun á ólöglegum vímuefnum er hverfandi. Eina vímuefnið sem fer uppá við í notkun er raf-sígarettan (rafrettan), en í Fjarðabyggð eins og á landinu öllu eru ungmenni að fikta við hana og þar er mikilvægt að spyrna við fótum. Eftirtektarvert er að ungmennin segja afstöðu foreldra mjög skýra gegn allri notkun vímuefna, en skýr afstaða og stuðningur foreldra við ungmennin skiptir gríðarlegu máli. Fræðslunefnd lýsir ánægju með afstöðu unga fólksins til vímuefnanotkunar.
-
3. Úthlutun úr Endurmennturnarsjóði grunnskóla 2017
Mál 1704093 Allur ferill málsins
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2017 lagt fram til kynningar. Sveitarfélagið Fjarðabyggð fékk styrk upp á 540.000 kr. vegna þriggja námskeiða og Grunnskóli Reyðarfjarðar fékk styrk upp á 72.000 kr. vegna eins námskeiðs.
-
4. Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS
Mál 1701123 Allur ferill málsins
Formaður fræðslunefndar fór yfir vinnu vegna bókunar 1 í kjarasamningi KÍ og FG. Fylgt hefur verið leiðbeiningum í Vegvísi samstarfsnefndar SNS. Formaður nefndarinnar og fræðslustjóri hafa átt tvo fundi með fulltúum kennara í hverjum skóla. Fyrir liggja drög að úrbótaáætlunum fyrir skólana, en fulltrúar kennara munu kynna þau fyrir kennurum á næstu dögum. Fræðslunefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar til frekari umræðu og samþykktar í bæjarráði.