Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 39

29. mars 2017, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Kjartan Glúmur Kjartansson, aðalmaður
  • Guðlaug Dana Andrésdóttir, varaformaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 515 liður 24

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 39 frá 29.mars 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 220 liður 8

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 29.mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Lesblindir, kvíði, óöryggi, vanlíðan - ráðstefna í Maí 2017

    Mál 1703093 Allur ferill málsins

    Borist hefur bréf frá félagi lesblindra á Íslandi þar sem sagt er frá fyrirhugaðri ráðstefnu þar gestafyrirlesari er Dr. Edwin K.Yager. Ráðstefnan kostar félagið um 2 milljónir króna og leitar félagið eftir 35.000 kr. styrk til verkefnisins.

    Fræðslunefnd felur fræðslusjtóra að kanna hvort sent verði út frá ráðstefnunni og samþykkir styrkveitingu verði það gert.

  2. 2. Kennslutímaúthlutun grunnskóla 2017-2018

    Mál 1703174 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga fræðslustjóra um kennslutímamagn fyrir skólaárið 2017-2018. Einnig liggur fyrir minnisblað fræðslustjóra þar sem fram kemur að vegna samsetningu nemendahópa þurfi að fjölga kennslutímum umfram það sem fjárhagsáætlun 2017 gerir ráð fyrir. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna en felur fræðslustjóra að fylgjast með þróun nemendafjölda til haustsins og leita leiða til þess að samþykkt kennslutímamagn rúmist innan fjárhagsáætlunar fyrir fræðslumál.

  3. 3. Skóladagatöl 2017-2018

    Mál 1703173 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja skóladagatöl leik-, grunn- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð þar sem sést hvernig starfs-, skipulags- og vetrarfrídagar raðast niður á almanaksárið. Reynt er að samræma frídaga nemenda í hverjum byggðarkjarna eftir því sem kostur er og tekst það að mestu að undanskyldum Norðfirði, en það stafar af fyrirhugaðri námsferð starfsmanna leikskólans á Eyrarvöllum. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi skóladagatöl.

  4. 4. Viðbygging við leikskólann Lyngholt

    Mál 1611029 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri gerði grein fyrir hönnunarvinnu tengdri fyrirhuguðum viðbyggingum við leikskólana á Eskifirði og Reyðarfirði. Samið var við arkitektastofuna Batteríið að hanna viðbyggingarnar.

  5. 5. Málefni leikskóla

    Mál 1703193 Allur ferill málsins

    Rædd voru málefni leikskóla, m..a. atvik sem átti sér stað í Kærabæ. Fræðslustjóri greindi frá málavöxtum og vinnslu málsins. Einnig var rædd þróun nemendafjölda í leikskólum, en jöfn fjölgun hefur verið undanfarin ár og allt sem bendir til sömu þróunar næstu árin. Þá var rædd mönnun leikskóla og á hvern hátt sveitarfélagið gæti stutt við leikskólana til þess að efla fagmenntun og fjölga faglærðum leikskólakennurum.