Skóladagatöl 2017-2018
Mál 1703173 Fyrst á dagskrá 29. mars 2017, síðast 6. apríl 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Fræðslunefnd, fundur 39 liður 3
Fyrir liggja skóladagatöl leik-, grunn- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð þar sem sést hvernig starfs-, skipulags- og vetrarfrídagar raðast niður á almanaksárið. Reynt er að samræma frídaga nemenda í hverjum byggðarkjarna eftir því sem kostur er og tekst það að mestu að undanskyldum Norðfirði, en það stafar af fyrirhugaðri námsferð starfsmanna leikskólans á Eyrarvöllum. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi skóladagatöl.
-
Bæjarstjórn, fundur 220 liður 8.3
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 39“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.