Kennslutímaúthlutun grunnskóla 2017-2018
Mál 1703174 Fyrst á dagskrá 29. mars 2017, síðast 6. apríl 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Fræðslunefnd, fundur 39 liður 2
Fyrir liggur tillaga fræðslustjóra um kennslutímamagn fyrir skólaárið 2017-2018. Einnig liggur fyrir minnisblað fræðslustjóra þar sem fram kemur að vegna samsetningu nemendahópa þurfi að fjölga kennslutímum umfram það sem fjárhagsáætlun 2017 gerir ráð fyrir. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna en felur fræðslustjóra að fylgjast með þróun nemendafjölda til haustsins og leita leiða til þess að samþykkt kennslutímamagn rúmist innan fjárhagsáætlunar fyrir fræðslumál.
-
Bæjarstjórn, fundur 220 liður 8.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 39“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.