735 Strandgata 77b - breyting á húsnæði
Mál 1704108 Fyrst á dagskrá 2. maí 2017, síðast 18. maí 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 175 liður 4
Lagt fram bréf Hjalta Sigurðssonar fh. Bjarka Gíslasonar, dagsett 23. apríl 2017, þar sem óskað er eftir leyfi til að breyta iðnaðarhúsnæði að Strandgötu 77b á Eskifirði í tvær íbúðir. Strandgata 77b er innan íbúðarsvæðis samkvæmt Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd heimilar að íbúðir verði gerðar í húsinu.
-
Bæjarstjórn, fundur 223 liður 3.4
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 175“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.