Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 175

2. maí 2017, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 520 liður 15

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr.175 frá 2.maí 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 223 liður 3

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 2. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 87.mál umsagnar tillögu til þingsályktunar um skipun starfshóps til að endurbæta löggjöf um vernd,velferð og veiðar villtra fugla og spendýra

    Mál 1704056 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum liggur frá Umhverfis og samgöngunefnd Alþingis til umsagnar tillaga til þingsályktunar um skipun starfshóps til að endurbæta löggjöf um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra, 87.mál.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd nýtir sér ekki umsagnarréttinn.

  2. 2. Leigulönd í Fjarðabyggð

    Mál 1610078 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytingar á reglum um leigulönd og felur umhverfisstjóra að ganga frá breytingum á orðalagi.

    Málinu vísað til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar.

  3. 3. Umhverfismál 2017

    Mál 1610080 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar drög að bæklingi þar sem farið er yfir helstu umhverfisverkefni sumarsins, nefndin gerir ekki athugasemdir og felur umhverfisstjóra að vinna málið áfram.

  4. 4. 735 Strandgata 77b - breyting á húsnæði

    Mál 1704108 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Hjalta Sigurðssonar fh. Bjarka Gíslasonar, dagsett 23. apríl 2017, þar sem óskað er eftir leyfi til að breyta iðnaðarhúsnæði að Strandgötu 77b á Eskifirði í tvær íbúðir. Strandgata 77b er innan íbúðarsvæðis samkvæmt Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd heimilar að íbúðir verði gerðar í húsinu.

  5. 5. Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1611104 Allur ferill málsins

    Skýrsla Capacent um greiningu á húsnæðismarkaði í Fjarðabyggð lögð fram sem trúnaðarmál til kynningar. Eigna-. skipulags- og umhverfisnefnd ræddi skýrsluna og mun umræðum um hana áfram á næstu fundum.

  6. 6. 740 Urðarbotnar, Nes- og Bakkagil - ofanflóðavarnir

    Mál 1606084 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar Minnisblað frá Verkís um ástand vatnsgeymis í Norðfirði vegna ofanflóðaframkvæmda. Sviðstjóra falið að ræða ofanflóðasjóð vegna málsins.

  7. 7. Norðfjarðargöng - undirbúningur 2012, aðalmál

    Mál 1207029 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar fundargerðir frá samráðsfundum um Norðfjarðargöng.

  8. 8. Egilsbúð - viðhaldsmál

    Mál 1601270 Allur ferill málsins

    Lagðar fram fundargerðir til kynningar.

  9. 9. Eignarsjóður viðhaldsmál 2017

    Mál 1703079 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir málefni eignasjóðs tengt viðhaldsmálum og mun halda þeirri vinnu áfram á næstu fundum.

  10. 10. Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar

    Mál 1606041 Allur ferill málsins

    Lagt fyrir drög að samning um jarðgerð og minnisblað verkefnastjóra umhverfismála dags. 2. maí 2017 um samningin um jarðgerð. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leiti og vísar til endanlegrar afgreiðslu hjá bæjarstjóra.