NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 174
21. apríl 2017, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 519 liður 16
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 24.apríl, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 222 liður 2
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 24. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar 2016
Mál 1604018 Allur ferill málsins
Lagðar fram umsagnir forsvarsmanna Tanna travel og Austjarðarleiða vegna breytinga á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir umsagnir og endanleg drög af samþykktinni og samþykkir þau fyrir sitt leyti. Formanni og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að yfirfara orðalag og framsetningu. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
2. Lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð - nr. 325/1999
Mál 1602082 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð til samræmis við drög til umsagnar. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
3. Ný reglugerð um heimagistingu, gististaði og skemmtanahald - verkferlar ofl.
Mál 1611016 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar og umræðu reglur vegna sölu gistingar í Fjarðabyggð ásamt minnisblaði um breytingar á reglugerð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir reglurnar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
4. 730 Hafnargata 1 - umsókn um stækkun lóðar
Mál 1704092 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Árna Más Valdimarssonar fh. Sesam ehf / Sesam Brauðhús, dagsett 19. apríl 2017, þar sem sótt er um stækkun lóðar fyrirtækisins að Hafnargötu 1 á Reyðarfirði um 4,5 metra til norðurs. Gert er ráð fyrir útisvæði fyrir gesti á hluta stækkunar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, stækkun lóðarinnar að Hafnargötu 1 og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
5. Norðfjarðargöng - umsókn um framkvæmdaleyfi
Mál 1303010 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Sveins Sveinssonar fh. Vegagerðarinnar, dagsett 22. apríl 2017, þar sem farið er yfir ástæður efnistöku úr fyllingu sunnan sundlaugarinnar á Eskifirði. Mun meira af efni fór í fyllingar og önnur verkefni á Eskifirði, ótengd framkvæmdum við Norðfjarðargöng en gert var ráð fyrir. Af þessum sökum vantar nú efni í vegagerð Eskifjarðarmegin.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fellst á skýringar Vegagerðarinnar en hvetur jafnframt til að framkvæmdatími verði jafn stuttur og mögulegt er og að allra leiða verði leitað til að takmarka ónæði nágranna vegna efnisvinnslu og flutninga.
-
6. Hraðakstur við leikskólann Dalborg Eskifirði
Mál 1704100 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir áhyggjur foreldrafélags Dalborgar af hraðakstri og felur sviðstjóra að kanna með uppsetningu á hraðahindrun.
-
7. 333. mál til umsagnar frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir dyrkkjarvörur(EES-Reglur ofl.)
Mál 1704063 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES reglur o.fl.), 333. mál.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerr ekki athugasemdir við frumvarpið.
-
8. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2017
Mál 1702115 Allur ferill málsins
Fundargerð 134. fundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands lögð fram til kynningar.
-
9. Útboð á viðhaldsmálum grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Mál 1703119 Allur ferill málsins
Opnuð voru tilboð í fyrsta áfanga í viðhaldi á Grunnskólanum á Fáskrúðsfirði, viðhald vegna myglu.
Eitt tilboð barst frá Launafli upp á 78.999.591 kr eða 114% af kostnaðaráætlun sem var 69.547.555. í Fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir 55.000.000 kr í þetta verkefni.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að semja við tilboðsgjafa á þeim forsendum að framkvæmdin haldist innan áætlaðs fjarmagns og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
10. Blómsturvellir 26-32 - sala (leikskólinn Sólvellir)
Mál 1703037 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykktir tillögu sviðstjóra að Hafnarsjóður Fjarðabyggðar nýti færanlegu kennslustofuna sem aðstoðuhús á Mjóeyrarhöfn.
-
11. Búlandsborgir Norðfirði
Mál 1311150 Allur ferill málsins
Fyrir fundinum lá sú tillaga að taka afstöðu til framtíðarnota jarðarinnar Búlandsborga í Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur bæjarstjóra að vinna drög að útboði á leigu hluta jarðarinnar.