Norðfjarðargöng - umsókn um framkvæmdaleyfi
Mál 1303010 Fyrst á dagskrá 21. apríl 2017, síðast 4. maí 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurByggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 174 liður 5
Lagt fram bréf Sveins Sveinssonar fh. Vegagerðarinnar, dagsett 22. apríl 2017, þar sem farið er yfir ástæður efnistöku úr fyllingu sunnan sundlaugarinnar á Eskifirði. Mun meira af efni fór í fyllingar og önnur verkefni á Eskifirði, ótengd framkvæmdum við Norðfjarðargöng en gert var ráð fyrir. Af þessum sökum vantar nú efni í vegagerð Eskifjarðarmegin.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fellst á skýringar Vegagerðarinnar en hvetur jafnframt til að framkvæmdatími verði jafn stuttur og mögulegt er og að allra leiða verði leitað til að takmarka ónæði nágranna vegna efnisvinnslu og flutninga.
-
Bæjarstjórn, fundur 222 liður 2.5
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 174“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.