Bæjarstjórn, fundur 222
4. maí 2017, kl. 16:00 til 16:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 519
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 2. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 1.1 Forsendubrestur í uppbyggingu hesthúsahverfis við Símonartún1704104
- 1.2 Lóðirnar Skólavegur 28 og 30 á Fáskrúðsfirði1704107
- 1.3 730 Hafnargata 1 - umsókn um stækkun lóðar1704092
- 1.4 Lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð - nr. 325/19991602082
- 1.5 Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar 20161604018
- 1.6 Ráðning félagsmálastjóra 20171702050
- 1.7 Uppsögn á starfi atvinnu- og þróunarstjóri1704115
- 1.8 Stefnumótun í fiskeldismálum1703120
- 1.9 Afmörkun hafnasvæða - réttindi og skyldur1702078
- 1.10 Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun1210091
- 1.11 Fab Lab í Fjarðabyggð1702133
- 1.12 Kynnisferð til Noregs vegna fiskeldismála1704134
- 1.13 Íbúafundir og viðtalstímar bæjarfulltrúa1204008
- 1.14 Aðalfundur Austurbrúar 2017 - Ósk um tilnefningar til stjórnar Austurbrúar ses1703203
- 1.15 Fundargerðir stjórnar SSA 20171701059
- 1.16 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1741704009F
-
2. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 174
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 24. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar 20161604018
- 2.2 Lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð - nr. 325/19991602082
- 2.3 Ný reglugerð um heimagistingu, gististaði og skemmtanahald - verkferlar ofl.1611016
- 2.4 730 Hafnargata 1 - umsókn um stækkun lóðar1704092
- 2.5 Norðfjarðargöng - umsókn um framkvæmdaleyfi1303010
- 2.6 Hraðakstur við leikskólann Dalborg Eskifirði1704100
- 2.7 333. mál til umsagnar frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir dyrkkjarvörur(EES-Reglur ofl.)1704063
- 2.8 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20171702115
- 2.9 Útboð á viðhaldsmálum grunnskóla Fáskrúðsfjarðar1703119
- 2.10 Blómsturvellir 26-32 - sala (leikskólinn Sólvellir)1703037
- 2.11 Búlandsborgir Norðfirði1311150
-
3. Lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð - nr. 325/1999
Mál 1602082 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi drögum að lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð úr hlaði.
Drögunum er vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til staðfestingar bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa lögreglusamþykkt til síðari umræðu í bæjarstjórn.
-
4. Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar 2016
Mál 1604018 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi drögum að endurskoðun á umferðarsamþykkt úr hlaði.
Drögunum er vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til staðfestingar bæjarstjórnar.
Til máls tók Valdimar O Hermannsson.
Bæjarstjórn samþykktir með 9 atkvæðum að vísa endurskoðun umferðarsamþykktar til síðari umræðu.
-
5. Leigulönd í Fjarðabyggð
Mál 1610078 Allur ferill málsins
Dagskrárliður tekinn til afgreiðslu með afbrigðum.
Forseti bæjarstjórnar lagði fram tillögu að breytingum á reglum um leigulönd.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 9 atkvæðum.